Lífið

Ragnar um Fanneyju: „Hún mun aldrei gleymast og mun alltaf verða heiðruð og virt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragnar Snær ætlar að sjá til þess að börnin hans og Fanneyjar Eiríksdóttur gleymi aldrei móður sinni.
Ragnar Snær ætlar að sjá til þess að börnin hans og Fanneyjar Eiríksdóttur gleymi aldrei móður sinni. vísir/vilhelm
Ragnar Snær Njálsson hefur gengið í gegnum erfiðari hluti en flestir jafnaldrar hans. Eiginkona hans Fanney Eiríksdóttir lést í sumar eftir tæplega árs baráttu við leghálskrabbamein. Í dag er Ragnar tveggja barna einstæður faðir sem þarf að koma undir sig fótunum og halda áfram með lífið. Ragnar segir sögu sína í Einkalífinu en Ragnar eignaðist þau Emilý Rós og Erik Fjalar með eiginkonu sinni. Hann lýsir síðustu dögum Fanneyjar á þessum nótum.

„Við erum bara í fullri baráttu undir lokin. Við erum komin inn á líknadeild í svokallaða hvíld en eftir að meinið kemst í beinin þá er þetta bara svo ofboðslega ömurlega fljótt að gerast. Það sem er ekki í móðu varðandi þessa lokadaga er að ég er tekinn á fund um það bil viku áður en hún deyr og læknirinn er að segja við mig, þetta er búið. Og ég er ekkert að kaupa það,“ segir Ragnar og bætir við að þau hafi alltaf ætlað sér að hafa betur í baráttunni við þennan hræðilega sjúkdóm.

„Það var ofboðslega mikil ást síðustu dagana. Þegar ég fann að hún var með mér, þá fann hún eitthvað. Og svo er hún bara dáin. Ég og Fanney vorum bara eitt. Hún var rosalega opin manneskja og átti fullt af vinum en ég var svona eini trúnaðarvinur hennar. Ég vissi allt um hana og hún allt um mig. Við vorum svo hamingjusöm alveg fram á síðasta dag, þrátt fyrir allt og ég er stoltur af því. Ég er hundrað prósent á því að hennar karakter og okkar sameiginlega helst áfram yfir í börnin.“

Ragnar ætlar sér að halda minningu Fanneyjar á lofti um ókomna tíð og hefur gert ákveðnar ráðstafanir varðandi börnin. Sá yngri er um eins árs og mun ekki muna eftir síðustu mánuðum þegar fram líða stundir. Það á aftur á móti ekki við um þá eldri.

„Við fórum í gegnum rosalega skipulagt og erfitt ferli með þá eldri, Emilý Rósu, og það í samvinnu við áfallateymi, prest og sálfræðing. Það var tekið föstum tökum og allt gert rétt. Hún mun örugglega eiga minningar af þessu og allavega út af því hvernig við stilltum þessu upp. Hún mun geta togað í þessar minningar og við getum talað saman um það. Ég fer nánast daglega yfir myndir. Og þegar maður er vel upp lagður kannski myndbönd en það er erfiðara og gerir þetta miklu raunverulegra. Ég sýni henni þetta allt en hún veit að mamma er dáin.“

Góð við allt og alla

Ragnar fer reglulega í kirkjugarðinn með börnunum og kyssir Emilý Rós alltaf kross móður sinnar.

„Þau munu um alla tíð vita hver mamma þeirra er og hvað hún stendur fyrir og hvað við stóðum fyrir saman. Það er hundrað prósent og hún mun aldrei gleymast og mun alltaf verða heiðruð og virt. Hún var góð við allt og alla og gerði allt fyrir alla. Ef mér tekst það hlutverk að koma okkur börnum í hálfkvist við móður sína, þá verður það mjög vel gert hjá mér.“

Í þættinum hér að ofan ræðir Ragnar einnig um síðastliðið ár og hvernig var að takast á við þennan erfiða sjúkdóm sem maki og aðstandandi, hvernig það hafi verið að reyna vera jákvæður og takast á við verkefnið af æðruleysi, hvernig stuðningur almennings og fjölskyldu þeirra snerti þau tvö, hvort hann sé í dag reiður maður, um síðustu daga Fanneyjar og að lokum um framtíðina hjá honum og börnunum tveim.


Tengdar fréttir

Upplifði mikið sjálfshatur í æsku

„Þetta hefur mótað mig að þeirri manneskju sem ég er í dag og kenndi mér mikilvæga lexíu,“ segir Birta Abiba Þórhallsdóttir, Miss Universe Iceland, sem er gestur Einkalífsins í þessari viku.

Rétt skal vera rétt

Ragnar Snær Njálsson hefur gengið í gegnum erfiðari hluti en flestir jafnaldrar hans. Eiginkona hans Fanney Eiríksdóttir lést í sumar eftir tæplega árs baráttu við leghálskrabbamein.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×