Arsenal átti engin svör við Leicester

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ansi öflugir
Ansi öflugir vísir/getty
Arsenal heimsótti Leicester City á King Power leikvanginn í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og úr varð bráðskemmtilegur leikur.

Mikill hraði var í leiknum frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu en staðan í leikhléi var engu að síður markalaus. 

Pierre Emerick Aubameyang skoraði fyrsta mark leiksins snemma í síðari hálfleik en það var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Á 68.mínútu kom Jamie Vardy heimamönnum yfir eftir laglegan undirbúning Harvey Barnes og Youri Tielemans.

Skömmu síðar gulltryggði James Maddison svo sigur Leicester þegar hann skoraði eftir sendingu frá Vardy.

Sigurganga Leicester heldur því áfram á meðan hvorki gengur né rekur hjá Arsenal.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira