Erlent

Kúrdar ná sam­komu­lagi við Assad

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, sendir hersveitir sínar til norðurhluta Sýrlands til að koma Kúrdum til aðstoðar.
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, sendir hersveitir sínar til norðurhluta Sýrlands til að koma Kúrdum til aðstoðar. getty/Ulrich Baumgarten/The Asahi Shimbun
Kúrdar hafa samið við ríkisstjórn Sýrlands undir forystu Bashar Hafez al-Assad um að herlið stjórnarinnar muni aðstoða Kúrda við að hrekja hersveitir, sem studdar eru af Tyrkjum, frá norðurhluta Sýrlands.

Fyrr í dag sluppu meira en 700 fangar úr fangabúðunum, Ayn Issa, í norðurhluta Sýrlands en flestir þeirra eru stuðningsmenn hryðjuverkasamtaka sem kenna sig við íslamskt ríki, ISIS. Áhyggjur hafa vaknað að þetta muni stuðla að sterkari stöðu ISIS á svæðinu og mögulegri endurkomu samtakanna.

Sjá einnig: Stuðningsmenn ISIS flýja fangabúðir í Sýrlandi



Hermenn Kúrda munu framselja landamærabæina Manbij og Kobane til yfirvalda í Damaskus samkvæmt samningi sem Rússar hafa milligöngu í. Þetta sögðu yfirvöld í Sýrlandi á sunnudagskvöld.

Sýrlenska ríkisútvarpið greindi frá því að nokkrar hersveitir úr her Bashar al-Assad væru á leið norður til að svara tyrkneskum árásarmönnum sem væru á sýrlensku landi. Óstaðfestar fregnir segja einnig frá því að samningurinn á milli Kúrdanna og ríkisstjórnarinnar ætti við um allan norðausturhluta Sýrlands.

„Við gerðum allt sem við gátum, við báðum um hjálp alþjóðasamfélagsins… en það varð ekki til þess að málið leystist. Við hvöttum kúrdíska hópa til að sýna stuðning en enginn hlustaði,“ sagði Ismat Sheikh Hassan, leiðtogi hernaðarráðsins í Kobane í samtali við fréttamiðla á svæðinu.

Samningurinn mun líklega binda endi á fimm ára hálf-sjálfsstjórn Kúrda í norðausturhluta Sýrlands og er það vegna árásar Tyrklands á svæðið. Tyrkland hóf innrás á miðvikudag eftir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, tilkynnti að bandarískar hersveitir myndu yfirgefa svæðið.

Hersveitir Kúrda á svæðinu, eða Sýrlenski lýðræðisherinn, hafa fengið fjárstyrki og verið þjálfaðir af Bandaríkjunum til að berjast gegn ISIS síðan árið 2015. Nú í mars hafði þeim loks tekist að hrekja hryðjuverkamennina af svæðinu en þá höfðu 11 þúsund kúrdískir hermenn fallið í baráttunni.

Tyrkir hins vegar telja stærsta hernaðarhóp Sýrlenska lýðræðishersins, kúrdíska YPG, vera hryðjuverkasamtök sem ekki sé hægt að aðskilja frá verkamannaflokki Kúrdistan (PKK). PKK hefur verið í uppreisn gegn tyrkneska ríkinu í áratugi.


Tengdar fréttir

Kúrdísk stjórnmálakona tekin af lífi

Hermenn studdir af tyrkneskum yfirvöldum leiða nú árásir inn í sýrlenskar landamæraborgir og bæi með landvinninga fyrir augum. Einn slíkur hópur tók í gær níu almenna borgara af lífi, en meðal þeirra var kúrdísk stjórnmálakona.

Tyrkir ná landamæraborg á sitt vald

Tyrkneski herinn hefur náð sýrlensku landamæraborginni Ras al-Ayn á sitt vald, um er að ræða stærstu og mikilvægustu landvinninga Tyrkja síðan að innrás í Sýrland hófst 9. október síðastliðinn

Tyrkir verði beittir við­skipta­þvingunum

Repúblikanar á Bandaríkjaþingi áforma nú smíði lagafrumvarps sem felur í sér að Tyrkir verði beittir viðskiptaþvingunum vegna innrásárinnar í Kúrdahéruð Sýrlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×