Klessti á bíl og datt af vespunni á flótta undan lögreglu Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. október 2019 07:03 Óhappið varð í Hafnarfirði í gærkvöldi. Vísir/vilhelm
Ökumaður vespu ók á bifreið og féll í götuna er hann reyndi að komast undan lögreglu í Hafnarfirði seint á tíunda tímanum í gærkvöldi. Maðurinn slasaðist í óhappinu og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn sé kærður fyrir að fylgja ekki fyrirmælum lögreglu, vanrækslu á merkjagjöf, aka yfir gatnamót gegn rauðu ljósi, of hraðan akstur, akstur undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna. Þá var hann einnig sviptur ökuréttindum. Seint á öðrum tímanum var lögreglu tilkynnt um bílveltu á Langholtsvegi í Laugardal. Ökumaðurinn hafði ekið á kyrrstæða bifreið og valt bifreið hans við það. Enginn slasaðist í slysinu en ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Hann var vistaður í fangageymslu lögreglu. Þá hafði lögregla afskipti af manni í Skeifunni seint í gærkvöldi þar sem hann stóð á miðju bílastæði og pissaði. Maðurinn var kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt. Um klukkan þrjú í nótt var lögregla kölluð til í verslun í Fossvogi. Þar hafði maður skemmt vörur sem hann ætlaði ekki að kaupa. Við afskipti lögreglu fundust ætluð fíknefni í fórum mannsins. Þá var maður handtekinn á Kjalarnesi grunaður um eignaspjöll og hótanir. Hann var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.
Hafnarfjörður Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira