Kæri stúdent Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar 24. september 2019 17:15 Kæri stúdent. Velkomin í Háskóla Íslands, nýnemar sem og eldri nemendur. Um þessar mundir eru mörg þúsund stúdentar að hefja nám innan veggja skólans og þetta er svo sannarlega tíminn til þess að virkja heilasellurnar aftur eftir langt og vonandi gott sumarfrí. En skólinn snýst ekki bara um að virkja heilasellur og læra, innan veggja hans eru nefnilega alls kyns möguleikar í boði fyrir utan námið þitt. Þegar ég byrjaði í Háskóla Íslands ákvað ég að fara í Vöku af því að ég sá tækifæri til þess að kynnast fólki þvert á svið háskólans. Einnig fann ég að þarna gat ég viðrað mínar skoðanir og nýtt krafta mína í að bæta hag stúdenta innan Háskóla Íslands. Hvað er Vaka og af hverju er ég í Vöku? Skemmtilegt að þú sért að velta því fyrir þér. Vaka er hagsmunafélag stúdenta innan Háskóla Íslands og hefur barist fyrir bættum hag stúdenta síðan 2. febrúar 1935. Í Vöku er án alls efa, duglegasta og skemmtilegasta fólk sem ég þekki. Síðan skemmmir það ekki fyrir að félagslífið innan hreyfingarinnar er frábært og vökupartýin standa alltaf fyrir sínu. Sjaldan á mínum tuttugu og tveimur árum á þessari jörð hef ég kynnst jafn kraftmiklu fólki sem tilbúið er að berjast fyrir bættum hag stúdenta. Þverpólitísk hagsmunabarátta er nauðsynleg. Í Vöku sameinast stúdentar allstaðar af hinum pólitíska ás og bera saman bækur sínar. Að tengja landspólitík við hagsmunabaráttu stúdenta er gamall brandari sem er eiginlega hættur að vera fyndinn. Það er mikilvægt að aðilar sem tala fyrir jafnstóran hóp og stúdenta innan Háskóla Íslands geti aðskilið sig frá hinni eða þessari stefnu. Hlutleysi gagnvart stjórnvöldum er mikilvægt til þess að geta verið raunveruleg og sameinuð rödd stúdenta. Ef við vinnum öll saman að bættum hag stúdenta, burtséð frá því hvort við viljum staðsetja okkur á vinstri, miðju eða hægri hlið stjórnmála, verður hagsmunabaráttan svo mikið betri, skemmtilegri og árangursríkari. Hagsmunabarátta stúdenta innan Háskóla Íslands snýst um það að ólíkar raddir komi saman við sama borð og vinni að sameiginlegum markmiðum. Það munt þú finna innan Vöku. Hlutir sem við teljum sjálfsagða í dag, eins og Hámu, prófabanka, Stúdentakjallarann og stúdentagarðana hefðu aldrei orðið til nema fyrir tilstilli hagsmunabaráttu Vöku. Vaka hefur alla tíð barist hart fyrir bættum hag stúdenta, gerir það enn í dag og mun halda því áfram um ókomna framtíð. Ég er í Vöku af því að þar er að finna raunverulega hagsmunabaráttu stúdenta. Þar er að finna hagsmunabaráttu þar sem allar skoðanir eru velkomnar. Innan raða Vöku finnur þú fólk sem vinnur óeigingjarnt starf í þágu stúdenta innan Háskóla Íslands. Hafðu áhrif og vertu með!Höfundur greinarinnar er formaður Vöku og situr í stúdentaráði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar