Innlent

Konan sem leitað var að fannst heil á húfi

Sylvía Hall skrifar
Lögreglan þakkar veitta aðstoð.
Lögreglan þakkar veitta aðstoð. vísir/vilhelm
Konan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir á miðvikudag er komin í leitirnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan óskaði eftir aðstoð björgunarsveita um sjöleytið í gærkvöldi og var leitað á nokkrum svæðum sem talið var að hún gæti verið. Konan fannst heil á húfi laust upp úr miðnætti í nótt.

Lögreglan þakkar veitta aðstoð við leitina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×