Handbolti

Olísdeildarspáin 2019/20: Allt til alls hjá FH til að fara alla leið

Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa
FH-ingar fagna bikarmeistaratitlinum á síðasta tímabili.
FH-ingar fagna bikarmeistaratitlinum á síðasta tímabili. vísir/bára
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins tvo daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að tólfta liðinu í spá okkar.

Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20:

1. sæti - FH

2. sæti - Valur

3. sæti - ÍBV

4. sæti - Haukar

5. sæti - Selfoss

6. sæti - Afturelding

7. sæti - Stjarnan

8. sæti - ÍR

9. sæti - KA

10. sæti - HK

11. sæti - Fram

12. sæti - Fjölnir

Nýi markvörðurinn, Phil Döhler.mynd/fh
Íþróttadeild spáir FH fyrsta sæti deildarinnar og þ.a.l. deildarmeistaratitlinum. FH-ingar enduðu í 4. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og féllu úr leik fyrir Eyjamönnum, 2-0, í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. FH varð hins vegar bikarmeistari í fyrsta sinn í aldarfjórðung.

Eftir tímabilið hætti Halldór Jóhann Sigfússon með FH. Hann stýrði liðinu í fimm ár og undir hans stjórn varð FH bikar- og deildarmeistari, komst tvisvar í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn og einu sinni til viðbótar í bikarúrslit. 

Við starfi Halldórs hjá FH tók Sigursteinn Arndal sem þreytir frumraun sína sem aðlþjálfari meistaraflokks. Hann hefur fengið þýska markvörðinn Phil Döhler frá Magdeburg, skyttuna Egil Magnússon frá Stjörnunni og varnarjálkurinn Ísak Rafnsson er kominn aftur heim í FH eftir árs dvöl í Austurríki.

FH hélt öllum sínum lykilmönnum og liðið virkar ógnarsterkt fyrir átökin sem framundan eru í vetur. FH vann Selfoss í Meistarakeppni HSÍ á miðvikudaginn og er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn gegn Vise BM í 1. umferð EHF-bikarsins eftir jafntefli í þeim fyrri á útivelli.

Komnir/Farnir:

Komnir:

Phil Döhler frá Magdeburg

Egill Magnússon frá Stjörnunni

Ísak Rafnsson úr láni frá SchwazTirol

Farnir:

Kristófer Fannar Guðmundsson, hættur

Línumaðurinn Ágúst Birgisson hefur verið ein styrktasta stoð FH undanfarin ár.vísir/daníel
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili

Sóknarleikur FH 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk skoruð í leik - 5. sæti (27,5)

Skotnýting - 4. sæti (58,5%)

Vítanýting - 1. sæti (86,6%)

Hraðaupphlaupsmörk - 5. sæti (63)

Stoðsendingar í leik - 4. sæti (10,0)

Tapaðir boltar í leik - 2. sæti (7,4)

Vörn og markvarsla FH 2018/19 í tölum HBStatz

Mörk fengin á sig í leik - 2. sæti (26,0)

Hlutfallsmarkvarsla - 10. sæti (28,7%)

Varin víti - 12. sæti (9)

Stolnir boltar - 1. sæti (90)

Varin skot í vörn - 10. sæti (37)

Lögleg stopp í leik - 8. sæti (18,6)

Einar Rafn Eiðsson hefur lengi verið í lykilhlutverki hjá FH.vísir/bára
Líklegt byrjunarlið FH í vetur:

Markvörður - Phil Döhler - 24 ára

Vinstra horn - Arnar Freyr Ársælsson - 25 ára

Vinstri skytta - Egill Magnússon - 23 ára

Miðja - Ásbjörn Friðriksson - 31 árs

Hægri skytta - Einar Rafn Eiðsson - 30 ára

Hægra horn - Birgir Már Birgisson - 21 árs

Lína - Ágúst Birgisson - 28 ára

Varnarmaður - Ísak Rafnsson - 27 ára

Jakob Martin Ásgeirsson fær væntanlega fleiri mínútur en á síðasta tímabili.vísir/daníel
Fylgist með

Jakob Martin Ásgeirsson (f. 1998) hefur byrjað tímabilið af krafti. Hann skoraði jöfnunarmarkið gegn Vise BM í Belgíu og átti svo góðan leik gegn Selfossi í Meistarakeppninni.

Jakob, sem lék með U-21 árs landsliðinu á HM á Spáni í sumar, er rétthentur hornamaður sem leysir jafnan stöðu bakvarðar í vörn. Lunkinn sóknarmaður og öflugur varnarmaður.

Sigursteinn Arndal er kominn í draumastarfið.vísir/stefán
Þjálfarinn

Sigursteinn Arndal tók við FH í sumar og er á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari meistaraflokks. Hann hefur þjálfað yngri flokka FH og yngri landslið Íslands. Hann var m.a. með hinn öfluga 1996-97 árgang sem vann brons á HM U-18 ára 2015.

Sigursteinn er af miklum FH-ættum, hefur sterka tengingu við félagið og er kominn í draumastarfið. Hann lék um 300 leiki fyrir FH og var um tíma spilandi aðstoðarþjálfari liðsins. Sigursteinn lék einnig sem atvinnumaður í Danmörku og Þýskalandi.





Klippa: Olísdeildarspá Stöð 2 Sport: FH
Hvað segir sérfræðingurinn?„FH-ingar eru líklegar sigurvegarar leikmannamarkaðsins því þeir fengu eina stærstu bitana. Þeir styrkja sig eiginlega í öllum hlutum leiksins, vörn, markvörslu og sókn,“ segir Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um FH-liðið.

„Þeir fá Egil (Magnússon) inn í sóknina sem er frábær sóknarmaður, Ísak (Rafnsson) kemur væntanlega inn sem varnarmaður því í sókninni þarf hann að berjast við frábærar skyttur í FH og svo fá þeir þýska markvörðinn Phil Döhler sem er gríðarlega spennandi að sjá hvernig kemur inn í íslenska boltann,“ segir Jóhann Gunnar.

„Svo er Arndal-inn okkar (Sigursteinn Arndal) farinn héðan og kominn í þjálfarastarf. Hann hefur gengið mjög góð ráð frá okkur og kemur inn í þetta með mikla þekkingu. Þetta verður samt erfitt því Halldór (Jóhann Sigfússon) er búinn að vinna frábært starf og það var komin mikil rútína inn í þetta,“ segir Jóhann Gunnar.

„Það verður gríðarlega spennandi að sjá FH-liðið miðað við hvað þeir gerðu á leikmannamarkaðnum. Þeir halda nánast öllum, Ási virkar í frábæru formi og þeir gera árás á alla titla,“ segir Jóhann Gunnar.

FH varð bikarmeistari á síðasta tímabili eftir aldarfjórðungs bið.vísir/bára
Hversu langt síðan að FH...

... varð Íslandsmeistari: 8 ár (2011)

... varð deildarmeistari: 2 ár (2017)

... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 1 ár (2018)

... varð bikarmeistari: 0 ár (2019)

... komst í bikarúrslit: 0 ár (2019)

... komst ekki í úrslitakeppni: 9 ár (2010)

... komst í undanúrslit: 1 ár (2018)

... komst í lokaúrslit: 1 ár (2018)

... féll úr deildinni: 13 ár (2006)

... kom upp í deildina: 11 ár (2008)

Gengi FH í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil

2018-19  4. sæti í deildinni

2017-18  3. sæti í deildinni

2016-17  Deildarmeistari

2015-16  6. sæti í deildinni

2014-15  4. sæti í deildinni

2013-14  4. sæti í deildinni

2012-13  2. sæti í deildinni

2011-12  2. sæti í deildinni

Gengi FH í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil

2018-19  Átta liða úrslit

2017-18  2. sæti

2016-17  2. sæti

2015-16  Átta liða úrslit

2014-15  Átta liða úrslit

2013-14  Undanúrslit

2012-13  Undanúrslit

2011-12  2. sæti

Kóngurinn í Krikanum, Ásbjörn Friðriksson.vísir/bára
Að lokum

FH-ingar þykja líklegir til afreka. Leikmannahópurinn á síðasta tímabili var sterkur en nú hafa þrír sterkir leikmenn bæst við. Ísak þekkir hvern krók og kima í Krikanum á meðan Egill vonast til að geta fullnýtt sína miklu hæfileika í nýju umhverfi.

Döhler gæti reynst mikilvægasta viðbótin því markvarslan var ekki góð hjá FH á síðasta tímabili. Þrátt fyrir að vera með þriðju verstu hlutfallsmarkvörsluna fékk aðeins eitt lið (Valur) á sig færri mörk en FH.

Mikil reynsla er í FH-liðinu og kjarninn hefur verið lengi saman. Sem fyrr verða Einar Rafn Eiðsson og Ásbjörn Friðriksson, markakóngur deildarinnar í fyrra, í lykilhlutverkum í sókninni. Þótt breiddin hjá FH sé mikil má liðið illa við því að missa Einar Rafn og Ásbjörn.

FH hefur verið í fremstu röð í íslenskum handbolta á undanförnum árum og það breytist ekkert í vetur.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×