Ekið á tvo ljósastaura með tuttugu mínútna millibili Sylvía Hall skrifar 26. ágúst 2019 06:34 Nokkur erill var hjá lögreglunni í nótt. Vísir/Vilhelm
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðaróhapp í Ártúnsbrekku skömmu eftir klukkan 18 í gærkvöldi. Þar hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni sem hafnaði á ljósastaur og var bifreiðin óökufær. Um tuttugu mínútum síðar barst tilkynning um samskonar umferðaróhapp í Hafnarfirði. Báðir ökumenn sluppu ómeiddir frá óhöppunum og var HS veitu og Orkuveitunni tilkynnt um óhöppin vegna skemmda á ljósastaurunum. Þá voru báðir bílar dregnir af vettvangi sökum skemmda. Skömmu eftir klukkan sjö í gærkvöldi var tilkynnt um líkamsárás á heimili í Laugardal þar sem um var að ræða tvær konur. Árásarþoli var fluttur á slysadeild með sár á höfði og árásaraðili var vistaður í fangageymslu lögreglu. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. Þá barst lögreglu tilkynning um aðra líkamsárás í Hlíðum á tólfta tímanum í gærkvöldi. Tveir menn voru handteknir eftir að hafa farið á brott í bifreið og voru vistaðir í fangageymslu. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur án ökuréttinda. Árásarþoli var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og er málið nú til rannsóknar. Ökumaður í Kópavogi var stöðvaður á níunda tímanum í gærkvöldi grunaður um ölvunarakstur. Í Hafnarfirði var svo annar ökumaður stöðvaður, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna þegar klukkan var að ganga tvö. Bifreiðin reyndist vera ótryggð og voru skráningarnúmer klippt af. Þá var þriðji ökumaðurinn stöðvaður í miðbæ Reykjavíkur skömmu eftir klukkan þrjú, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Hafnarfjörður Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira