Erlent

Fórnarlömb í El Paso vildu ekki hitta Trump í umdeildri heimsókn

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Trump stillir sér upp með báða þumla á lofti umkringdur starfsfólki Miami Valley-sjúkrahússins í Dayton í gær.
Trump stillir sér upp með báða þumla á lofti umkringdur starfsfólki Miami Valley-sjúkrahússins í Dayton í gær. Twitter/@Scavino45
Ekkert hinna átta fórnarlamba skotárásarinnar í El Paso í Texas sem liggja enn á sjúkrahúsinu sem Donald Trump Bandaríkjaforseti heimsótti í gær vildi hitta forsetann og föruneyti hans. Heimsóknir Trumps til El Paso og Dayton í Ohio, þar sem önnur skotárás var framin aðfaranótt sunnudags, ollu miklu fjaðrafoki meðal andstæðinga hans. Þá notaði Trump jafnframt tækifærið til að hjóla í borgarstjóra Dayton og öldungardeildarþingmann Demókrata í Ohio á meðan ferðalaginu stóð.

Skotárásirnar tvær hafa vakið mikinn óhug í Bandaríkjunum. Árásarmaður skaut 22 til bana inni í Walmart-verslun í El Paso í Texas á laugardagsmorgun. Innan við sólarhring síðar, rúmlega eitt eftir miðnætti að staðartíma, skaut annar byssumaður níu til bana fyrir utan skemmtistað í Dayton í Ohio. Tugir særðust í árásunum.

Ekki velkominn í El Paso

Trump heimsótti eftirlifendur skotárásanna á sjúkrahús í báðum borgum í gær. Heimsókn hans til El Paso var einkum mætt með andstöðu en margir hafa sagt forsetann kynda undir innflytjendaandúð með orðræðu sinni, sem árásarmaðurinn í El Paso vísaði til í stefnuyfirlýsingu sinni. Þar sagðist sá síðarnefndi ætla að bjarga Bandaríkjunum frá „innrás innflytjenda“ frá rómönsku Ameríku en forsetinn hefur einmitt notað orðið „innrás“ til að lýsa straumi innflytjenda til Bandaríkjanna í gegnum landamærin við Mexíkó.

Stór hópur mótmælenda tók á móti forsetanum í El Paso í gær en borgin stendur við téð landamæri. Íbúar borgarinnar eru margir af rómönskum ættum, auk þess sem fjöldi innflytjenda er þar búsettur. Myndband frá fjöldafundi mótmælendanna má sjá í spilaranum hér að neðan en Beto O‘Rourke, frambjóðandi í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar árið 2020, var á meðal þeirra sem tók til máls á fundinum. Hann sagði forsetann hafa kynt undir hatrið sem hvatti árásarmanninn til voðaverksins og væri því ekki velkominn til El Paso.

Washington Post hafði eftir talsmanni UMC-sjúkrahússins í El Paso að ekkert hinna átta fórnarlamba skotárásarinnar sem enn liggja á sjúkrahúsinu hafi viljað hitta Trump þegar hann kom í gær. Tvö fórnarlömb sem þegar höfðu verið útskrifuð af sjúkrahúsinu mættu þó til fundar við forsetann á spítalanum.

Yfirþyrmandi að hleypa fréttamönnum inn

Áður en Trump hélt til El Paso heimsótti hann Miami Valley-sjúkrahúsið í Dayton, þar sem þrjú fórnarlömb skotárásarinnar liggja inni. Athygli vakti að fréttamönnum var ekki heimilað að fylgjast með heimsókninni á spítalann.

Í svari Stephanie Grisham talskonu Hvíta hússins kom fram að ekki hefði þótt við hæfi að hleypa fréttamönnum inn á spítalann og gera heimsóknina að „tækifæri til að stilla sér upp á myndum“. Slíkt hefði getað orðið afar yfirþyrmandi fyrir sjúklinga og fjölskyldur þeirra.

Þessi ákvörðun hefur verið gagnrýnd nokkuð harðlega, sérstaklega í ljósi þess að skömmu eftir heimsóknina birti Hvíta húsið myndband og fjölda mynda af Trump, þar sem hann ræðir við og stillir sér upp með starfsfólki og sjúklingum.

Þá sagði Dan Scavino, aðstoðarmaður Trumps, að forsetinn hefði fengið viðtökur á við „rokkstjörnu“ á spítalanum í Dayton.

„[…] sem náðist allt á myndband. Þau elskuðu öll að sjá stórkostlega forsetann sinn!“ skrifaði Scavino.

Hér að neðan má svo sjá myndband Hvíta hússins frá heimsóknunum til El Paso og Dayton. Einnig voru birt myndbönd frá hvorri heimsókn fyrir sig.

Trump mætti jafnframt nokkurri andstöðu íbúa í Dayton við komu sína til borgarinnar. Sherrod Brown, öldungadeildarþingmann frá Ohio, og Nan Whaley, borgarstjóri Dayton, sem bæði eru Demókratar, gagnrýndu forsetann fyrir að ala á sundrung með orðræðu sinni og andstöðu hans við herta byssulöggjöf í Bandaríkjunum. Þau voru hins vegar bæði jákvæð í garð heimsóknar Trumps til Dayton.

Trump sakaði þau þó bæði um að hafa „mistúlkað“ það sem fram fór á spítalanum í borginni í tísti sem hann birti á leið sinni til El Paso.

Ekki er ljóst hvað forsetinn átti þar við. Hér að neðan má sjá myndband af Whaley þar sem hún furðar sig á þessum ummælum Trumps. „Ég er mjög rugluð, við sögðum að hann hefði hlotið góðar móttökur. Ég veit ekki hvað hann er að tala um, „mistúlkað“...“ segir Whaley.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×