Fimm nú sagðir látnir í eldflaugarslysi í Rússlandi Kjartan Kjartansson skrifar 9. ágúst 2019 22:37 Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur verið fámált um sprenginguna í Archangelsk-héraði í gær. Vísir/Getty
Kjarnorkustofnun Rússlands segir að fimm starfsmenn hennar hafi látið lífið þegar eldflaugarhreyfill sprakk á æfingastöð hersins í norðanverðu landinu í gær. Upphaflega sögðu yfirvöld að tveir hefðu látist í slysinu. Geislavirkni jókst í skamman tíma í nærliggjandi borg eftir sprenginguna. Þrír til viðbótar eru sagðir hafa slasast í sprengingunni sem varð við tilraun á eldflaugarhreyfli með fljótandi eldsneyti, að því er segir í frétt Reuters. Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur lítið tjáð sig um slysið. Það hélt því fram að engin eitur- eða geislavirk efni hefðu losnað í sprengingunni. Engu að síður greindu yfirvöld í borginni Severodvinsk frá því að þar hefði mælst aukin geislavirkni í skamman tíma. Sú tilkynning hvarf skyndilega af netinu í dag án skýringar. Engin opinber skýring hefur verið gefið á aukinni geislavirkni. Níu manns slösuðust í annarri sprengingu í herstöð nærri borginni Atsjinsk í austurhluta Síberíu. Varnarmálaráðuneytið heldur því fram að eldingar hafi valdið sprengingunni, að sögn AP-fréttastofunnar. Einn lést og þrettán særðust í miklum sprengingum á sama stað á mánudag.
Rússland Tengdar fréttir Geislamengunar vart eftir mannskætt eldflaugarslys Eldflaugarhreyfill sprakk á skotsvæði rússneska sjóhersins með þeim afleiðingum að tveir fórust og sex slösuðust. 8. ágúst 2019 17:47 Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Fleiri fréttir Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Sjá meira
Geislamengunar vart eftir mannskætt eldflaugarslys Eldflaugarhreyfill sprakk á skotsvæði rússneska sjóhersins með þeim afleiðingum að tveir fórust og sex slösuðust. 8. ágúst 2019 17:47