Formúla 1

Uppgjör: Hamilton einfaldlega í annarri deild

Bragi Þórðarson skrifar
Lewis Hamilton hefur verið í algjörum sérflokki í Formúlu 1 í ár.
Lewis Hamilton hefur verið í algjörum sérflokki í Formúlu 1 í ár. vísir/getty
Nú þegar að þriðjungi tímabilsins í Formúlu 1 er lokið hefur ríkjandi heimsmeistarinn, Lewis Hamilton, 36 stiga forskot í keppni ökuþóra.

Hamilton tryggði sér sinn sjötta sigur í átta keppnum um helgina er liðsfélagi hans, Valtteri Bottas, varð annar.

Bottas þurfti á sigri að halda í Frakklandi til að minnka muninn í mótinu þar sem Finninn virðist vera sá eini sem getur keppt við Hamilton um titilinn.

Mercedes liðið hefur unnið allar keppnir ársins og er nú með 140 stiga forskot á Ferrari. Þó Mercedes bílarnir myndu báðir detta út úr næstu þremur keppnum og Ferrari endaði í fyrsta og öðru myndi ítalska liðið samt ekki komast upp fyrir Mercedes.

Viðburðalítill kappakstur
Hamilton ræsti fyrstur og leiddi alla hringi kappakstursins.Getty
Franski kappaksturinn um helgina var frekar dapur. Hamilton leiddi alla hringina og staða efstu fjögurra ökuþóranna breyttist aldrei.

Búist var við hörkuslag milli Mercedes ökumannanna sem ræstu á fremstu röð. Valtteri Bottas virtist þó ekki eiga nein svör við ógnarhraða Hamilton. Að lokum endaði Finninn 18 sekúndum á eftir liðsfélaga sínum.

Charles Leclerc ræsti þriðji og endaði þriðji aðra keppnina í röð. Mónakóbúinn gerði atlögu að Bottas á síðasta hring en komst ekki framúr.

Liðsfélagi Leclerc, Sebastian Vettel, hefur verið að keppa við Hamilton um heimsmeistaratitilinn síðustu ár. Ekkert hefur gengið upp hjá Þjóðverjanum í ár og endaði hann fimmti um helgina.

Stutt er í næstu keppni sem fer fram í Austurríki um næstu helgi. Þar er Red Bull á heimavelli og freistar liðið þess að gera betur en fjórða sætið sem Max Verstappen náði um helgina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×