Innlent

Katalínan lendir á Þingvallavatni

Kristján Már Unnarsson skrifar
Katalínan á Þingvallavatni síðdegis. Fjær sést í Sandey fyrir miðri mynd og Hengil til vinstri. Myndin er tekin út um glugga vélarinnar.
Katalínan á Þingvallavatni síðdegis. Fjær sést í Sandey fyrir miðri mynd og Hengil til vinstri. Myndin er tekin út um glugga vélarinnar. Mynd/Matthías Sveinbjörnsson.
Áhöfn Catalina-flugbátsins, sem lenti í Reykjavík í dag, eftir nærri sex tíma flug frá Skotlandi, ákvað óvænt á fjórða tímanum að fara í útsýnisflug um suðvesturhornið. Flugmennirnir spurðu viðstadda hvort einhversstaðar í nágrenni borgarinnar væri stórt stöðuvatn sem óhætt væri að lenda á og fengu svarið: Þingvallavatn. 

Flugmennirnir biðu ekki boðanna og rýndu í flugkortin. Flugbáturinn sögufrægi var svo ræstur, nokkrum gestum boðið um borð, og haldið í loftið á ný. Stefnan var tekin í átt að Þingvallavatni þar sem ætlunin er að taka snertilendingu, - það er að láta flugbátinn rétt snerta vatnsflötinn en taka hann svo strax aftur á flug. Myndskeið af slíkri snertilendingu má sjá á heimasíðu flugvélarinnar.

Búist er við að snertilendingin á Þingvallavatni verði nú á fimmta tímanum. Líklegt þykir að flugmennirnir velji að lenda úti á miðju vatni, fjarri vatnsbakkanum. 

Uppfært klukkan 16:45:Katalínan lenti tvívegis á Þingvallavatni. Lendingarstaðurinn var á austanverðu vatninu, undan Arnarfelli og Mjóanesi. Fyrri lendingin var snertilending en sú síðari venjuleg lending og síðan flugtak með fullu flugtaksbruni, að sögn Matthíasar Sveinbjörnssonar, forseta Flugmálafélagsins, sem var um borð.

Catalina-flugbáturinn kom til Reykjavíkur frá Skotlandi á þriðja tímanum í dag.Vísir/KMU
Eftir flugtak af Þingvallavatni var aftur haldið til Reykjavíkur þar sem flugbáturinn lenti um fimmleytið.

Flugmennirnir höfðu jafnframt orð á því að þeir stefndu á annað útsýnisflug á morgun og jafnvel aðra lendingu á stöðuvatni, ef veðrið héldist jafngott og í dag. 

Catalina-flugbáturinn verður sýndur almenningi á flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli á laugardag, milli kl 12 og 16. Flugatriði á sýningunni verða milli kl. 13 og 15.

Catalina í góðum félagsskap með Páli Sveinssyni á Reykjavíkurflugvelli í dag.Vísir/KMU.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×