Landsmenn hafa mestar áhyggjur af spillingu og fátækt Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. maí 2019 17:55 Landsmenn hafa áhyggjur af ýmsu en áhyggjur af loftslagsbreytingum hafa aukist mest á milli ára. vísir/vilhelm
Spilling í stjórnmálum og/eða fjármálum er það sem veldur landsmönnum mestum áhyggjum en áhyggjur af húsnæðismálum og heilbrigðisþjónustu fara minnkandi. Þetta sýna niðurstöður könnunar MMR sem var framkvæmd dagana 11. til 15. febrúar síðastliðinn. Voru svarendur spurðir um hvaða þrjú atriði þeir höfðu mestar áhyggjur af á Íslandi eða í íslensku samfélagi. Að því er fram kemur á vef MMR hafa 44 prósent landsmanna mestar áhyggjur af spillingu, 35 prósent nefndu fátækt og/eða félagslegan ójöfnuð, 35 prósent nefndu heilbrigðisþjónustu og 33 prósent húsnæðimál. Áhyggjur af loftslagsbreytingum hafa svo aukist mest frá könnun ársins 2018. Loftslagsbreytingar voru nefndar af 20 prósent svarenda í könnuninni nú og nemur aukningin 11 prósentustigum. „Þá hafa áhyggjur af sköttum (7 prósentustiga aukning), verðbólgu (6 prósentustiga aukning), fátækt og/eða félagslegum ójöfnuði (5 prósentustiga aukning) og efnahagslegu hruni/samdrætti (4 prósentustiga aukning) einnig aukist á milli ára. Áhyggjur af menntun hafa minnkað mest af öllum málefnum eða um því sem nemur 13 prósentustigum frá könnun síðasta árs, úr 17% í 5%. Þá hafa áhyggjur af heilbrigðisþjónustu (9 prósentustig), glæpum og ofbeldi (6 prósentustig) og húsnæðismálum (4 prósentustig) einnig minnkað yfir sama tímabil,“ segir á vef MMR þar sem lesa má nánar um könnunina.
Alþingi Heilbrigðismál Íslenskir bankar Loftslagsmál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira