Glæsimark Kompany og City í bílstjórasætinu 6. maí 2019 20:45 Kompany fagnar sigurmarkinu. vísir/getty Manchester City er með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa unnið 1-0 sigur á Leicester í kvöld. Það voru margir sem biðu spenntir eftir leik kvöldsins en Liverpool stuðningsmenn vonuðust eftir að Leicester myndi hirða stig af City enda mikil barátta á toppnum. Fyrri hálfleikurinn spilaðist eins og flestir reiknuðu með. City hafði boltann nær allan hálfleikinn en Leicester voru hættulegir í sínum skyndisóknum. Markalaust í hálfleik. City reyndi og reyndi en það var ekki fyrr en á 70. mínútu að liðið komst yfir og markið kom frá varnarmanninum Vincent Kompany. Hann óð upp að teignum og þrumaði boltanum í vinkilinn. Ótrúlegt mark.100 – Man City have now scored 100 goals in all competitions at the Etihad this season; extending their record for most home goals by an English top-flight team in a single campaign. Ton. #MCILEI — OptaJoe (@OptaJoe) May 6, 2019 Leicester fékk dauðafæri er skammt var til leiksloka en fyrrum City-maðurinn Kelechi Iheanacho klúðraði dauðafæri. City náði að halda út og mikilvæg þrjú stig í hús. City er með eins stigs forskot á Liverpool fyrir lokaumferðina. City mætir Brighton á útivelli en Liverpool mætir Wolves á heimavelli.2 - Man City have beaten every team they’ve faced in the league for the second consecutive season; the only other English top-flight team to achieve this were Preston between 1888-89 and 1889-90. Relentless. #MCILEIpic.twitter.com/psyptubDJt— OptaJoe (@OptaJoe) May 6, 2019 Enski boltinn
Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Íslenski boltinn
Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Íslenski boltinn