Erlent

Risa­fugl varð Flórída­búa að bana

Atli Ísleifsson skrifar
Kasúar geta orðið rúmlega 45 kíló að þyngd og geta hlaupið hratt.
Kasúar geta orðið rúmlega 45 kíló að þyngd og geta hlaupið hratt. Getty
Bandarískur karlmaður á áttræðisaldri er látinn eftir að hafa orðið fyrir árás af hendi stórum, ófleygum fugli í hans eigu.

Lögregla í Alachua-sýslu var kölluð að búgarði mannsins á föstudag þar sem komið var að manninum særðum eftir árás kasúa.

Maðurinn, Marvin Hajos, var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést af sárum sínum. Búgarðinn er að finna suður af bænum Alachua í norðurhluta Flórída, um 200 kílómetrum norður af Orlando.

Aðstoðarlögrreglustjórinn Jeff Taylor segir að vísbendingar séu um að Hajos hafi dottið og kasúinn ráðist á hann þar sem hann lá á jörðinni. Hajos hafði haldið ýmis framandi dýr á búgarði sínum um margra áratuga skeið, þar með talið lamadýr.

Kasúum svipar nokkuð til emúa og eru í hópi þeirra fugla sem verða stærstir og geta þeir orðið rúmlega 45 kíló að þyngd. Þeir eru ófleygir en geta náð allt að 50 kílómetra hraða á hlaupum og eru með langar klær á fótunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×