Ægir: Þá getum við alveg gleymt því að vinna þessa seríu Árni Jóhannsson skrifar 8. apríl 2019 21:27 Ægir var ómyrkur í máli í leikslok í kvöld. vísir/bára
Stjarnan tapaði í kvöld gegn ÍR í undanúrslitum Dominos-deildar karla og er staðan í einvíginu orðin jöfn 1-1. Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði Stjörnunnar, var ómyrkur í máli um það hvernig Stjörnumenn misstu leikinn eiginlega úr höndum sér. „Við bara misstum haus. Það er bara það, við létum utanaðkomandi hluti fara í taugarnar á okkur. Það leiddi okkur út úr stöðunni, bæði í varnarleik og sóknarleik og ef við ætlum að fara að einbeita okkur að einhverju kjaftæði sem tengist ekki körfubolta þá getum við alveg gleymt því að vinna þessa seríu,“ sagði Ægir Þór. „Við verðum að halda haus og vita hvað við erum að fara að gera bæði í vörn og sókn, það er það sem skiptir máli.“ Stjarnan hafði mest náð 10 stiga forskoti í seinni hálfleik þegar um tvær mínútur lifðu af þriðja leikhluta en með miklum ákafa í vörn og skynsömum leik náði ÍR að naga forystuna niður, komast yfir og klára leikinn þegar á reyndi í fjórða leikhluta. Ægir var, eins og áður segir, ósáttur við hugarfar sinna manna og talaði um að því þyrfti að skipta út fyrir næsta leik. „Fyrir næsta leik þurfum við að skipta um hugarfar. Við þurfum að koma skynsamir inn í næsta leik. Við þurfum bara að halda haus og klára þessa leiki.“ Ægir var að lokum spurður hvort hans menn hafi verið komnir eitthvað lengra í huganum eftir stór sigur í fyrsta leik. „Það var ekkert svoleiðis í gangi. Það var ekki það sem við vorum að pæla, enda sögðum við eftir seinasta leik að við ætluðum að koma í þennan leik af festu. Við verðum bara að hrósa ÍR, þeir komu betur stemmdir í þennan leik.“
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: ÍR - Stjarnan 85-76 | Breiðhyltingar svöruðu fyrir sig Hörkuleikur þegar ÍR jafnaði einvígið. Heimvöllurinn heldur. 8. apríl 2019 22:00 Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira
Leik lokið: ÍR - Stjarnan 85-76 | Breiðhyltingar svöruðu fyrir sig Hörkuleikur þegar ÍR jafnaði einvígið. Heimvöllurinn heldur. 8. apríl 2019 22:00