Innlent

Möguleiki á háum skaðabótum ef fólk utan félaga verður truflað við störf

Margrét Helga Erlingsdóttir og Sighvatur Jónsson skrifa
Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, segist vita að atvinnurekendur í ferðamannageiranum muni láta reyna á bótaskyldu stéttarfélaga ef afskipti verða höfð af bílstjórum sem ekki eiga að vera í verkfalli.

Samtök Atvinnulífsins og Efling túlka verkfallslöggjöfina með ólíkum hætti því að í bréfi Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, til forsvarsmanna hópbifreiðafyrirtækja á félagssvæði Eflingar kemur fram að öllum hópbifreiðastjórum svæðisins beri að leggja niður störf að miðnætti.

Sjá nánar: Túlka verkfallsboðun ekki með sama hætti

Helgi segir að skaðabæturnar gætu orðið háar en erfitt sé að henda reiður á umfanginu.

„Þetta er ekki bara rútumiðinn. Fólk getur misst af flugi og dýrum ferðum. Hitt og þetta getur verið í uppnámi. Það er eiginlega ómögulegt að segja til um það núna hvað það getur verið mikið,“ segir Helgi.

Helgi telur túlkun Eflingar vera of víða.

„Það er hreinlega í Stjórnarskrá Íslands að menn hafa val um það að vera í félögum eða standa utan félaga. Þeir sem ekki eru í Eflingu eiga ekkert að þurfa að sæta þessu verkfallsboði. Það er alveg fráleit túlkun að mínu áliti að segja bara að allir þeir sem eru að keyra stóra bíla á þessu svæði eigi bara að vera í verkfalli.“




Tengdar fréttir

SA segja verkfallsboðunina einungis eiga við um félagsmenn

Boðuð verkföll ná einungis til starfsmanna sem eiga aðild að þeim stéttarfélögum sem hafa boðað verkföll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins sem send var til fjölmiðla til að bregðast við orðum Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar.

Mögulegt að fresta verkföllum með skömmum fyrirvara

Lögfræðingur Alþýðusambands Íslands segir að fræðilega sé hægt að fresta verkföllum VR og Eflingar með skömmum fyrirvara. Samningafundur stendur enn yfir hjá ríkissáttasemjara milli Samtaka atvinnulífsins og viðsemjenda en fjölmiðlabann var sett skyndilega á eftir upphaf fundar í morgun.

Túlka verkfallsboðun ekki með sama hætti

Efling og SA túlka með mismunandi hætti til hvaða starfsmanna boðuð verkföll, sem hefjast eiga á miðnætti, nái til. Verkfallið myndi ná til um 2.600 félagsmanna Eflingar og VR á hótelum og hjá hópbifreiðafyrirtækjum.

Breyti titlum starfsfólks til að komast hjá verkfalli

Eflingu-stéttarfélagi hefur borist fjölmargar ábendingar frá starfsfólki einnar hótelkeðju á Íslandi um að hæstráðendur séu þessa dagana að uppfæra titla starfsfólks í því skyni að komast hjá verkföllum. Þannig sé verið að titla starfsfólk hinum ýmsu millistjórnendanöfnum þrátt fyrir að hvorki kjör né ábyrgð breytist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×