Handbolti

Bjarni: Hef áhyggjur af því hversu hrikalega lélegir við höfum verið eftir bikarhelgina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bjarni og félagar eru ekki lengur í úrslitakeppnissæti.
Bjarni og félagar eru ekki lengur í úrslitakeppnissæti. vísir/bára
Bjarni Fritzson, þjálfari ÍR, var afar ósáttur með frammistöðu sinna manna gegn Fram í kvöld. Framarar unnu leikinn með fimm marka mun, 23-28.

„Þetta var ógeðslega lélegt hjá okkur,“ sagði Bjarni í samtali við Vísi eftir leik og dró ekkert undan.

„Við spiluðum hræðilega vörn í byrjun, brutum ekki, vorum slitnir í sundur og óöruggir. Þar af leiðandi var markvarslan engin. Svo datt þetta ekki fyrir okkur í sókninni. Viktor [Gísli Hallgrímsson] stóð sig vel í markinu hjá Fram,“ sagði Bjarni.

„Svo fórum við mikið beint á Ægi [Hrafn Jónsson] og hann varði fullt af skotum í vörninni. Þetta gerðum við í staðinn fyrir að gefa okkur tíma. Þegar við gerðum það sköpuðum við okkur færi, sérstaklega í fyrri hálfleik.“

Bjarni segir að hann beri mikla ábyrgð sem þjálfari liðsins.

„Mér fannst Fram vera miklu betra. Við prófuðum alls konar hluti en vorum ekki tilbúnir og áttum ekki möguleika. Það skrifast á mig. Ég stýri skútunni og þarf að skoða þetta og leysa. Við getum ekki dvalið lengi við þetta. Við þurfum að mæta klárir í næsta leik og muna að það eru bara tvær vikur síðan við vorum að spila frábærlega,“ sagði Bjarni og bætti við: „Ég hef áhyggjur af því hversu hrikalega lélegir við höfum verið eftir bikarhelgina.“

Eftir úrslit kvöldsins er ÍR komið niður í 9. sæti deildarinnar, einu sæti frá úrslitakeppninni þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir.

„Ef maður spilar þokkalega vel líður manni ekki eins illa þegar maður tapar. Stundum falla hlutirnir ekki með þér. En núna erum við að spila illa og ég hef áhyggjur af því. Við erum mjög ólíkir sjálfum okkur,“ sagði Bjarni.

„Annað hvort nýtum við þetta til góðs og komum miklu sterkari til baka. Eða við brotnum sem lið og gefumst upp.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×