Innlent

Iðnaðarmenn vísa kjaradeilu sinni til Ríkissáttasemjara

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Iðnaðarmenn vísa kjaradeilu til Ríkissáttasemjara
Iðnaðarmenn vísa kjaradeilu til Ríkissáttasemjara Vísir/Vilhelm
Samninganefnd iðnaðarmanna fundaði í dag með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins vegna endurnýjunar kjarasamninga félaganna. Á fundinum var staðan metin og í kjölfar umræðna ákváðu iðnaðarmenn að vísa kjaradeildunni til Ríkissáttasemjara í dag og á morgun. Þetta kemur fram á vef Rafiðnaðarsambandsins. Þar kemur einnig fram að það sé gert til að koma á meiri festu í viðræðurnar undir stjórn sáttasemjara. Samninganefnd iðnaðarmanna vonast að með þessum aðgerðum komist meiri skriður á þær viðræður sem framundan eru og leiði til þess að kjarasamningar verði undirritaðir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×