Innlent

Talið að bíll hafi farið i Ölfusá

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Frá vettvangi.
Frá vettvangi. Vísir/MHH
Mikið lið viðbragðsaðila er við Ölfusá á Selfossi eftir að tilkynning barst um að bíll væri í ánni.

Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar staðfestir að allar björgunarsveitir í Árnessýslu hafi verið boðaðar út en að auk þess sem óskað hafi verið eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar.

Þá er einnig er búið að óska eftir björgunarsveitum úr Reykjavík með öfluga ljóskastara til að lýsa upp ánna og svæðið í kring.



Uppfært 22:20

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir að þyrla fari af stað frá Reykjavík á næstu mínútum.

 

Uppfært 22:30

Frímann Birgir Baldursson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi staðfestir í samtali við fréttastofu að tilkynning hafi borist um að bíll hafi farið í Ölfusá. Bíllinn hafi hins vegar enn ekki sést en brak hefur verið að koma upp. Brak eins og stuðarar og rúðuskafa.

Björgunarsveitir úr allri Árnessýslu hafa verið sendir á staðinn, auk slökkviliðsmanna frá Brunavörnum Árnessýslu, lögreglu og sjúkraflutningamönnum.

 

Uppfært 22:59

Leit björgunarsveitarmanna við Ölfusá á Selfossi, eftir að tilkynning barst um að bíll hefði farið í ánna, er mjög umfangsmikil. Björgunarsveitarmenn ganga meðfram bökkum og bátum er siglt upp og niður ána. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-SYN er komin á vettvang og leitar áhöfnin úr lofti. Þá hafa slökkviliðsmenn notast við hitamyndavél við leit.

Aðgerðum er stjórnað úr Björgunarmiðstöðinni á Selfossi. Frímann Birgir Baldursson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að skipulag leitarinnar sé umfangsmikið og líklegt að leitað verði fram eftir nótt.



Fréttin hefur verið uppfærð.

Stjórnendur viðbragðsaðila virða fyrir sér ánna en talið er að bíll hafi farið í hana.Vísir/MHH
Gengið er með bökkum Ölfusár og þá hafa slökkviliðsbílar verið notaðir til þess að lýsa upp ánna.Vísir/MHH
Öflugir kastarar eru notaðir til þess að lýsa upp ánna sem er krafmikil. Kalt er á vettvangi og nokkur vindur. Leitað verður fram á nóttVísir/MHH



Fleiri fréttir

Sjá meira


×