Mamma vaknaði ekki Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 11. febrúar 2019 08:00 Ãsta Lovísa Jónsdóttir með sonum sínum, hetjunni Bjartmari og Bjarka, litla bróður hans. MYND/EYÞÓR
Bjartmar Örn Sigurjónsson var aðeins fimm ára þegar hann bjargaði móður sinni, Ástu Lovísu Jónsdóttur, úr hennar fyrsta flogakasti. Ásta segir heimasíma mikilvægt öryggistæki fyrir börnin. Hún segir sögu sína í tilefni 112-dagsins sem haldinn er í dag. Að þessu sinni er lögð áhersla á öryggi á heimilinu. „Ég var að undirbúa háttatímann og man að ég settist í sófann með náttföt drengjanna en síðan ekki söguna meir fyrr en á sjúkrahúsinu,“ segir Ásta Lovísa sem fékk sitt fyrsta alflog að kvöldi dags 8. janúar í fyrra. „Maðurinn minn var nýfarinn til vinnu og við synir okkar, Bjartmar og Bjarki, þá fimm og eins árs, vorum ein heima. Bjartmar var að horfa á Simpsons og bað mig að hækka í sjónvarpinu en þegar ég svaraði engu leit hann á mig og sá að ég lá í sófanum skjálfandi og froðufellandi.“ Ásta segir Bjartmar vera barn sem hæglega hefði getað frosið í aðstæðum sem þessum en þess í stað gekk hann markvisst að útidyrunum til að sækja hjálp. „Bjartmari hafði aldrei áður tekist að opna læsta útidyrahurðina hjálparlaust en hann náði því þarna og fór til nágranna okkar í kjallaranum sem voru blessunarlega heima, komu upp og hringdu á sjúkrabíl. Við búum í tvíbýli og Bjartmar þekkti því nágrannakonuna, Berglindi Ósk Ásmundsdóttur, sem sagði hann hafa útskýrt rólega að mamma hans vaknaði ekki. Hann lýsti líka atburðarásinni vel fyrir sjúkraflutningamönnunum, að það hefði liðið yfir mig, ég hefði skolfið öll og hrist og að hvítt hefði komið út úr munni mínum, sem reyndist þeim mjög gagnlegt,“ útskýrir Ásta.Heimilissími er öryggistæki Bjartmar er nú sex ára skóladrengur en hafði fengið heimsókn frá slökkviliðinu í leikskólann og fræðslu um 112. „Við foreldrarnir höfðum aldrei rætt við hann um hvernig ætti að bregðast við ef eitthvað kæmi fyrir heima og þyrfti að kalla á sjúkrabíl, lögreglu eða slökkvilið. Við höfðum hugsað okkur að kenna honum að hringja í 112 þegar hann byrjaði í grunnskóla og fá okkur þá heimasíma, sem er mikið öryggisatriði á heimilum ef vá ber að dyrum, því það er flókið fyrir barn að opna læstan gsm-síma og finna út úr því hvar á að hringja eftir mismunandi símategundum,“ segir Ásta. Fyrsta verk þeirra hjóna var því að fá sér heimasíma. „Við lærðum að seinka því ekki, keyptum síma með stóru letri fyrir sjónskerta og hengdum upp símanúmerið 112 til öryggis og leiðbeiningar fyrir börnin.“Stolt og þakklát Bjartmari Ásta Lovísa hafði þjáðst af þrálátum höfuðverk og taugakippum í andliti og handleggjum áður en hún fékk flogakastið. Hún er hjúkrunarfræðingur en grunaði ekki að einkennin tengdust flogaveiki. Við komuna á sjúkrahús fékk Ásta svo annað flogakast og var send í heilalínurit daginn eftir. „Þar sást flogavirkni og nú er ég tæknilega greind með flogaveiki og er á flogaveikilyfjum sem hafa varnað því undanfarið ár að ég hafi fengið fleiri flog,“ útskýrir Ásta. Hún segist innilega þakklát og stolt af Bjartmari að hafa brugðist svo skynsamlega við. „Hann var ansi lítill að bjarga málum en stóð sig með prýði og hugrekki alla leið. Þetta tók mikið á hann fyrst á eftir, hann var hræddur um mömmu sína og passaði upp á mig öllum stundum; að ég yrði ekki ein heima og var rólegri ef hann var þó bara einn með mér, minnugur þess að hann hafði orðið til bjargar fyrr. Í dag talar hann orðið minna um þetta, er allur að jafna sig og sannarlega ánægður að hafa heimasímann til taks.“
Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fleiri fréttir Gefa yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Sjá meira