Íslenski boltinn

Sjáðu eldræðu Jóns Rúnars um viðtalið við Ceferin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, gerði viðtal íþróttadeildar við Aleksandar Ceferin, forseta UEFA, sem birtist bæði á Vísi og í kvöldfréttum Stöðvar 2 að umfjöllunarefni á ársþingi KSÍ á laugardag.

Þingið var opið fjölmiðlum og hefst upptaka okkar af ræðunni þegar  Jón Rúnar var nýbúinn að taka til máls.

Ceferin sagðist í viðtalinu ekki geta lýst yfir formlegum stuðningi við annan frambjóðandann í formannskjöri KSÍ en sagði þetta:

„Ég verð þó að segja að ég ber mikla virðingu fyrir Guðna Bergssyni. Ég tel hann vera frábæran leiðtoga og KSÍ hefur aldrei átt í eins góðum samskiptum við UEFA og það gerir í dag með Guðna sem formann.“

Ummælin vöktu mikla athygli og norski fjölmiðillinn Josimar.no telur að mögulega hafi Ceferin með þessu brotið siðareglur UEFA.

Jón Rúnar byrjaði að lýsa því að hann hafi fyrst um sinn beðið eftir viðbrögðum stjórnar KSÍ um afskipti forsetans af formannskjöri á Íslandi, sem Jón Rúnar telur óeðlilegt.

„Ég beið í tvo daga eftir því hvort að stjórnin, þeir sem að verja okkar mál ef á okkur er sótt, myndu gera eitthvað.  Ég beið við símann hvort eitthvað kæmi fram, en það gerðist ekkert,“ sagði Jón Rúnar sem hafði svo samband við nokkra stjórnarmenn KSÍ og þar hefst upptaka okkar af ræðu hans:

„Ég byrjaði á því, eins hvatvís og ég get verið, að hafa samband við nokkra stjórnarmenn KSÍ og spyrja hvernig á þessu stæði. Það sem mér finnst verst í þessu er að menn settu þetta svo sterkt í samband við fyrirhugaðar kosningar að það væri í raun ekki hægt að gera neitt.“

„Ég talaði líka við félaga mína í ÍTF, þar var líka sama uppi á teningnum - að bregðast við gæti túlkast sem stuðningsyfirlýsingu við annan frambjóðandann. Það hefur ekkert með það að gera í mínum huga, ekki neitt.“

„Það er algerlega óþolandi að mínu viti að okkar stjórn, þeir sem eiga að passa upp á svona hluti, skuli ekki hafa brugðist við. Því að þögnin er sama og samþykki.“

„Ég var líka tiltölulega hissa á Guðna Bergssyni, þeim mæta dreng sem situr sem formaður, hann fékk tækifæri til þess í sjónvarpsviðtali - svo ég tali nú ekki um hvert við erum komin þegar kosningar hér til formanns eru orðið aðalsjónvarpsefnið, látum það liggja á milli hluta - þar var að sjálfsögðu hægt að fordæma þetta. Þó svo að um leið, að ágætur Guðni hefði getað þakkað fyrir stuðninginn - það er bara allt, allt annað mál.“

„En hvers konar heigulsháttur er þetta, í stærstu hreyfingu landsins, að samþykkja það með þegjandanum einum, að afskipti utan frá eru samþykkt. Því þau eru samþykkt ef þú segir ekki neitt.“

„Ég vildi koma þessu fram því á morgun er strætóinn farinn og þá þýðir ekkert að segja að ég hefði átt að gera þetta. Ég vildi koma þessu fram frá mínu brjósti, svona líður mér sem félaga í þessum ofboðslega kröftugu og flottu samtökum. En mér líður illa og ég fæ ákveðið bragð í munn þegar mér finnst vörnina hafa svikið algerlega.“

„Ég ætla ekki að leggja neitt til. Þetta vildi ég segja, svo er þetta búið af minni hálfu. Takk fyrir.“


Tengdar fréttir

Geir: Ég er ekki strengjabrúða eins eða neins

Geir Þorsteinsson, formannsframbjóðandi hjá KSÍ, er verulega ósáttur við afskipti forseta UEFA, Aleksander Ceferin, af formannskjöri KSÍ en Ceferin mærði Guðna Bergsson í viðtali við Vísi í vikunni.

Forseti UEFA: Guðni Bergsson er frábær leiðtogi

Aleksander Ceferin, forseti UEFA, talar fallega um Guðna Bergsson, formann KSÍ, í samtali við Vísi og segir samstarf KSÍ og UEFA betra núna en það hafi nokkurn tíma verið.

Geir: Ósiðleg afskipti hjá forseta UEFA

Geir Þorsteinsson, fyrrum formaður KSÍ, er verulega ósáttur við afskipti forseta UEFA af formannskjöri KSÍ. Geir segir að forsetinn hafi brotið siðareglur UEFA með framkomu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×