Austanstormur síðdegis Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. febrúar 2019 08:21 Lægð nálgast landið úr suðri. Vísir/vilhelm
Veðurstofan varar við austanstormi í kvöld og nótt. Þar að auki sé útlit sé fyrir hríð á fjallvegum um land allt með lélegu skyggni. Þannig er búist við að vindhraði verði á bilinu 20 til 25 m/s undir Eyjafjöllum í nótt og gætu hviður náð 40 m/s. Því geti víða verið varhugavert ferðaveður. Veðurfræðingur rekur vendingarnar til vaxandi lægðar sem nú nálgast landið úr suðri. Það verði því austanátt í dag með stöku skúrum eða éljum á suðurhluta landsins, en þó hægari vindur og þurrt á Norður- og Austurlandi. Lægðin verður nálægt landinu í nótt og því hvessir, og þykknar meira upp, í kvöld og nótt, fyrst syðst á landinu. Vindhraðinn gæti því víða orðið á bilinu 18 til 23 m/s og hitinn allt að sex gráðum. Það má búast við slyddu sunnantil sem gæti þó orðið að rigningu á láglendi. Þar að auki er gert ráð fyrir hríð á fjallvegum í öllum landshlutum. Það lægir svo snemma á morgun, fyrst syðst á landinu, og styttir upp. Suðlæg átt, 5-13 m/s síðdegis, úrkomulítið og kólnar aftur, en næsta lægð nálgast svo aðfaranótt föstudags.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Austan 18-23 m/s og rigning eða slydda, en yfirleitt snjókoma um landið norðaustanvert. Hiti frá frostmarki á Norðausturlandi, upp í 7 stiga hita með suðurströndinni. Lægir talsvert um hádegi, fyrst syðst á landinu. Suðlæg átt 5-13 seinnipartinn, úrkomulítið og kólnar í veðri.Á fimmtudag:Sunnan 13-20 m/s, hvassast vestast á landinu og rigning, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hiti 4 til 9 stig.Á föstudag:Hæg suðlæg átt og þurrt, en austlægri vindur, 8-15 m/s, og rigning suðaustan- og austantil á landinu. Hiti 1 til 6 stig.Á laugardag:Suðlæg átt 10-15 m/s og víða rigning, en hvöss vestanátt og snjókoma um kvöldið. Kólnandi veður.Á sunnudag:Hæg breytileg átt, léttskýjað og frost 0 til 5 stig. Vaxandi suðaustanátt og hlýnar um kvöldið, og fer einnig að ringna sunnan- og vestanlands.Á mánudag:Hæg vestlæg eða breytileg átt og léttskýjað, en stöku él um vestanvert landið. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Innlent Fleiri fréttir Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Horfði á gamla fundi til að undirbúa sig „Góður dagur fyrir nýja tíma í Reykjavík“ Fyrsti fundur borgarstjórnar, ný rannsóknarnefnd og bein Jónasar Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Furðar sig á því að þeir sem vildu minnka báknið fjölgi ráðum Fasteignamat lækkar að raunvirði „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Bein útsending: Kynna fasteignamat ársins 2027 Sjá meira