Erlent

Batt steypuklump við eiginkonu sína og kastaði henni fram af brú

Sylvía Hall skrifar
Elizabeth var 28 ára þegar hún var myrt af eiginmanni sínum.
Elizabeth var 28 ára þegar hún var myrt af eiginmanni sínum. GoFundMe/Fangelsið í Tarrant-sýslu
Rodolfo Arellano, 36 ára gamall maður frá Texas-fylki í Bandaríkjunum, játaði á miðvikudag að hafa orðið 28 ára eiginkonu sinni Elizabeth Pule Arrelano að bana árið 2016 með því að binda fimmtíu kílóa steypuklump við háls hennar og kasta henni fram af brú. People greinir frá. 

Það var móðir Elizabeth sem tilkynnti hvarf hennar til lögregluyfirvalda eftir að hún var hvergi sjáanleg á heimili foreldra sinna þar sem hún hafði gist aðfaranótt 16. apríl árið 2016. Kvöldið áður hafði hún farið út að skemmta sér með vinnufélögum og tilkynnti síðar vinkonu sinni að hún væri komin heil á höldnu heim til foreldra sinna eftir skemmtunina. 

Þegar hvarf Elizabeth var tilkynnt hafði lögreglan fundið lík hennar fyrr um daginn eftir að veiðimaður á svæðinu setti sig í samband við lögreglu eftir að hafa séð eitthvað falla af brúnni yfir vatnið Lake Worth í borginni Fort Worth. Sjónarvottar sögðust einnig hafa heyrt hróp þegar henni var kastað fram af brúnni. 

Eiginmaður hennar, Rodolfo, hafði neitað því að hafa orðið eiginkonu sinni að bana en líkt og fyrr sagði játaði hann morðið nú á miðvikudag eftir að sönnunargögn gáfu sterklega til kynna að hann væri sekur. Farsímagögn staðsettu hann nærri heimili tengdaforeldra sinna um svipað leyti og Elizabeth hvarf og þá fann lögregla einnig meiri steypu í garði hans við húsleit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×