Febrúarspá Siggu Kling – Vogin: Þó þú sért stjarna þá ertu feimin og óörugg Sigga Kling skrifar 1. febrúar 2019 09:00
Elsku Vogin mín, þú ert sterk, hrein og bein í samskiptum við aðra og þolir ekki lygi og undirferli, svo að ef slíkt kemst upp í kringum þig þá getur mín alveg klikkast! En þú þarft að læra að setja þig í spor annarra sem eru kannski ekki jafn heiðarlegir og duglegir og þú, því að til þess að skilja alheiminn þarftu að læra að setja þig í annarra spor. En þegar maður er heiðarlegur skilur maður ekki nógu vel til að geta sett sig í slík spor og það er bannað að dæma því við erum öll eins elsku Vogin mín, svo reyndu bara að skilja alla vitleysingana í kringum þig þá gengur þér betur. Þó þú sért stjarna þá ertu feimin og óörugg, það myndi þó engum detta þetta í hug og það er svo auðvelt að koma þér úr jafnvægi, en enginn mun sjá það. Þú átt alltaf eftir að nota kennarann í þér sem er aðalorkan þín, þú kennir og kennir og kennir, og þegar þú ert að leiðbeina öðrum er eins og þú sjáir hvernig heimurinn er, eins og þú sért að kenna sjálfum þér eitthvað nýtt. Þetta tímabil sem þú ert að fara inn í núna er það tímabil sem þú átt eftir að fá svo marga á þitt band og þér líður svo vel og átt svo auðvelt með að miðla þinni þekkingu til að efla aðra. Það er svo sannarlega ekkert að gerast hjá þér um þessar mundir, svo reyndu bara að njóta þess því breytingar eru ekki alltaf góðar bara breytinganna vegna. Þú hjartað mitt skynjar hættur betur en aðrir og átt þar af leiðandi auðveldara með að forðast þær, þú þarft ekki lögfræðing í neinum málum því þitt hyggjuvit nægir til að fá því framgengt sem þig vantar, því í hverri Vog býr lögfræðingur. Þótt þú gangir ekki hinn „Gullna meðalveg“, þá geturðu hrópað húrra fyrir því, vegna þess að hinn gullni meðalvegur er eins og Gullni Hringurinn, Gullfoss, Geysir og svo framvegis, engin útkoma. Knús og kossar, Kling.Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, hinn mikli meistari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Anthony Head er látinn Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Lífið samstarf Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Fleiri fréttir Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Sjá meira