Lífið

Klaufalegur koss Chrissy Teigen vekur athygli

Sylvía Hall skrifar
Chrissy Teigen er þekkt fyrir að vera með þeim hressari.
Chrissy Teigen er þekkt fyrir að vera með þeim hressari. Vísir/Getty
Fyrirsætan Chrissy Teigen fagnaði áramótunum eins og svo margir á Times Square í New York í gær. Teigen var einn kynna áramótadagskrár sjónvarpsstöðvarinnar NBC og spjallaði við gesti í tilefni áramóta.

Á meðal gesta var grínistinn Leslie Jones sem mætti vel búinn með regnhlíf í rigningarveðrinu. Þegar fyrirsætan ætlaði að gefa grínistanum faðmlag og koss fór það ekki betur en svo að andlit hennar rakst í regnhlífina.





Teigen lét það þó ekki á sig fá og hló að atvikinu, enda löngum þekkt fyrir að vera hress og taka lífinu ekki of alvarlega.

Í Twitter-færslu í dag fullvissaði hún áhyggjufulla aðdáendur um að það væri allt í lagi með hana eftir atvikið sem þótti heldur klaufalegt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×