Nýársspá Siggu Kling – Hrúturinn: Þú tekur svo þýðingarmikla ákvörðun Sigga Kling skrifar 4. janúar 2019 09:00
Elsku Hrúturinn minn, þú ert á svo andlegu og töfrandi ári því að þú nærð að finna nákvæmlega út hvað þú vilt gera, en þú ert búinn að vera flæktur í svo margt og allskonar sem hefur rifið orkuna þína niður og sjálfið því þú hefur verið eins og á víð og dreif. Það er eins og þú safnir þér saman og gerir þessar mörgu einingar í þér að einu sjálfi og af svo miklum krafti að það fær þig ekkert stöðvað og það verður enginn tossalisti þetta árið, heldur stendur framkvæmdalisti á þínu ári. Þú skynjar svo skýrt hverjir soga úr þér kraftinn og misnota afl þitt, svo þú sleppir þeim týpum lausum líkt og þú skýtur baunum úr teygjubyssu. Þú munt öðlast meiri orku við það að hafa mikið að gera og við sem þér finnst virkilega skemmtilegt og heillandi og þú veist í hjarta þínu að þegar þér líður þannig þá ertu á réttri leið. Allt er að gerast í nákvæmlega réttri röð og talan sjö einkennir vorið, sem er andleg tala sem fyllir þig orku og hjálpar þér að velja rétt. Þetta er líka tala þolinmæði, svo slepptu stjórnunartökum á öðru fólki og leyfðu þeim að bjarga sér sjálfum og þú verður alveg steinhissa á því hvað allir eru í raun og veru sjálfstæðari en þú heldur, svo mikið að þú fyllist stolti af þínu fólki. Ekki láta daprar hugsanir trufla þig of mikið, þá virkarðu leiður og skapvondur, tengdu þig frekar við tilfinningar þínar, sigurgleði og þakklæti, því þá muntu finna þann frið sem þér finnst stundum þig skorti. Maí kemur sérstaklega fagnandi með góðar fréttir, sumarið er svo innilega þinn tími því þá leyfirðu þér að sleppa huganum frjálsum og slaka á. Þú tekur svo þýðingarmikla ákvörðun yfir sumartímann að það mun hafa áhrif á allt þitt líf þótt þú sjáir það ekki strax, en þetta er snilldarákvörðun, einföld og spennandi. Það er svo mikilvægt þú skoðir á þessu ári að nota sköpunarhæfileika þína að einhverju tagi svo þú getir nýtt þínar fjölmörgu og mögnuðu hugmyndir og haustið gefur þér svo mörg tækifæri til að hrinda því sem þú vilt í framkvæmd að það raðast upp í kringum þig fólk og verkefni sem svo augljóslega kalla á þig, svo vertu í framboði.Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson, Elín Björnsdóttir, fyrirlesari og kraftaverkakona, Guðbjörn Alexander Kling fótboltamaður, Theresa Rodriguez listamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira