Allan daginn úti að leika og læra Sólveig Gísladóttir skrifar 7. janúar 2019 08:00 Eftir veikindi þolir Sveinlaug ekki að vinna mikið innandyra og því er útikennslan fullkomin fyrir hana. Mynd/Eyþór
Ég segi alltaf að þegar einar dyr lokast opnast aðrar. Veikindi mín urðu til þess að ég fann mína hillu, og ef ég myndi vakna alheilbrigð á morgun og gæti unnið inni myndi ég aldrei kjósa það,“ segir Sveinlaug sem hefur í þrjú og hSveinlaug útskrifaðist sem leikskólakennari árið 2006 en hún valdi það nám eftir að hafa starfað á leikskóla í heilt ár eftir stúdentspróf. „Mér fannst alltaf svo gaman í vinnunni og var með sérstaklega góðan deildarstjóra sem tókst að kveikja hjá mér áhuga á hinni faglegu hlið starfsins.“ Hún starfaði sem leikskólakennari í nokkur ár en veiktist mikið af völdum rakaskemmda og myglu á heimili sínu og var frá vinnu í nokkra mánuði vegna þess. „Þegar ég kom til baka úr veikindaleyfi fann ég að líkami minn réði ekki við að vera lengi innandyra innan um mikið af fólki. Ég er ofurnæm fyrir minnstu rakaskemmdum og með efnaóþol, verð lasin fljótt og líf mitt litast mjög af þessum veikindum.“ Sveinlaug þurfti að skipta tvisvar um vinnu vegna lélegra loftgæða. Hún var að vinna í Krikaskóla í Mosfellsbæ þegar hún veiktist í þriðja sinn. „Yfirmaður minn hefur staðið virkilega vel við bakið á mér og saman leituðum við lausna. Ein þeirra var að ég prófaði að sinna bara útikennslu enda leið mér alltaf vel úti við. Því varð fötlun mín til þess að ég fór í útikennsluna einvörðungu.“Frjáls leikur og núvitund Sveinlaug segist sjálflærð í útikennslu en hún hefur þó í seinni tíð sótt ýmis námskeið hjá samtökum áhugafólks um útinám, og er nýkomin af alþjóðlegri útikennsluráðstefnu í Ástralíu. „Það er stór hluti af starfi leikskólakennarans að vera úti og mér hafði alltaf þótt sá hluti starfsins skemmtilegur,“ segir Sveinlaug og útskýrir nánar út á hvað starf útikennarans gengur. „Útikennari gerir í raun það sama og aðrir kennarar, nema hvað að hann gerir það úti. Útikennsla er afar fjölbreytt og í raun fer eftir hverjum kennara fyrir sig hvað er gert. Ég vinn mikið með frjálsan leik og núvitund en börn á leikskólaaldri læra best í gegnum frjálsan leik. Ég reyni að skapa þeim aðstæður til að þau geti sökkt sér djúpt í leik í náttúrunni. Það geri ég í formi ferða sem við köllum ævintýraferðir. Þá förum við til dæmis í fjallið hér fyrir ofan leikskólann eða í skóginn fyrir neðan skólann. Stundum förum við líka í strætóferðir inn í bæinn.“ Sveinlaug segir alla krakkana hafa gaman af útiverunni en hún sinnir öllum hópum, allt frá litlu tveggja ára krílunum og upp í elsta hóp. „Það fylgir alltaf annar starfsmaður hverjum hópi. Lengd útiverunnar er síðan mismunandi eftir aldri krakkanna.“Veðrið stoppar okkur ekki Hvað ef veðrið er brjálað? „Þá bara gerum við eitthvað í brjáluðu veðri,“ segir Sveinlaug hlæjandi og bendir á að veðrið ráði því þó oft hvað hóparnir taki sér fyrir hendur. „Ég er að vinna í skóla sem er hannaður með útikennslu í huga. Ef það er ekki hægt að fara út af lóðinni er góð aðstaða á henni, hálfgert hús með þremur veggjum og þaki þar sem við getum farið í leiki eða tálgað. Þegar veðrið er sem verst fá þeir, sem vilja og þora, að fara út. Þá förum við í óveðursgöngu og ég nota veðrið til að kenna þeim, til dæmis hvar megi leita skjóls og slíkt. Annars finnst börnum veður yfirleitt ekkert vont,“ segir Sveinlaug og telur að á síðustu árum hafi kannski dottið niður útikennsla einu sinni á ári vegna veðurs.“ En verður henni ekki kalt? „Nei, mjög sjaldan. Ég er í ullarfötum stærstan hluta ársins, í kraftgalla og ullarsokkum,“ segir hún og brosir.
Birtist í Fréttablaðinu Börn og uppeldi Skóla - og menntamál Mest lesið „Það að missa hann hefur líklega mótað mig hvað mest“ Lífið Britney deildi myndbandi af Yrsu að fá gleraugu í fyrsta sinn Lífið Léti aldrei sjá sig í ökklasokkum Tíska og hönnun Eigendur Tripical keyptu glæsihæð við Nesveg Lífið „Fötlun fyrir marga að vera með lítið typpi“ Lífið Sjáðu-hjónin kunna að halda partý Lífið Ghost of Yōtei: Einhver heimsins fallegasti leikur og skemmtilegur líka Leikjavísir Tindatríóið híft upp en Anna Sigga enn föst Lífið „Ef þú kemur hingað og ferð að brjóta lög þá áttu ekkert erindi hér“ Lífið „Þetta er virkilega fallegt samfélag“ Lífið Fleiri fréttir „Ef þú kemur hingað og ferð að brjóta lög þá áttu ekkert erindi hér“ Skrýtin skilaboð að þurfa að sækja fundi til að vera edrú „Þetta er virkilega fallegt samfélag“ Eigendur Tripical keyptu glæsihæð við Nesveg „Það að missa hann hefur líklega mótað mig hvað mest“ Tindatríóið híft upp en Anna Sigga enn föst Britney deildi myndbandi af Yrsu að fá gleraugu í fyrsta sinn „Dreymir um að geta haft jákvæð áhrif á líf annarra“ „Öðruvísi að vera þarna megin við borðið“ í baráttu við krabbann Sjáðu-hjónin kunna að halda partý Tilkynnti dauða Trés lífsins með brókarmynd Sjónlýsing í fyrsta sinn „Fötlun fyrir marga að vera með lítið typpi“ Karen og Hjalti orðin tveggja barna foreldrar Fullkominn brúðkaupsdagur í frönskum kastala Play gjaldþrota: Hvað geta Laufey og Viagra kennt okkur? Dauðlangar í kynlífsdúkku en óttast álit annarra Fagnar gagnrýni á „rasshausa-ummæli“ sín Silja Rós og Magnús eiga von á dreng Andri og Anne selja í Fossvogi Ljúffeng gulrótarkaka í morgunmat „Þetta fólk myndi ekki rata í Víkina með Google Maps“ Fór á skeljarnar eftir siglingu um Miðjarðarhafið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi „Mikilvægt að íslenskt samfélag virði alla sem Íslendinga“ Gefur endurkomu undir fótinn Enginn í joggingbuxum í París Guðrún er með sólarsellurafmagn í sautján fermetra húsi sínu Embla Wigum flytur aftur á Klakann Helgi Ómars útskrifaður sem heilsumarkþjálfi Sjá meira