Innlent

Samstarfi hjálparsveita og skógræktar vel tekið

Sveinn Arnarsson skrifar
Skógræktarfólk gróðursetur rótarskot hjálparsveita í sumar.
Skógræktarfólk gróðursetur rótarskot hjálparsveita í sumar. Fréttablaðið/Ernir
Nýjung björgunarsveitanna, að bjóða landsmönnum upp á að kaupa græðling til gróðursetningar í nýjum áramótaskógi Skógræktarfélags Íslands, var afar vel tekið og seldust þúsundir rótarskota vítt og breitt um landið fyrir þessi áramót.

Formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir samstarfið komið til að vera og hugmyndin þróuð áfram.

„Við erum nú ekki komin með nákvæmar tölur um hversu mörg rótarskot voru seld um þessi áramótin en öll 15.000 eintökin sem við létum útbúa fóru út til björgunarsveitanna. Langflestar þeirra þurftu að panta inn rótarskot aftur því þau seldustu upp í upphafi,“ segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Landsbjargar. „Því er ljóst að nokkur þúsund rótarskot hið minnsta hafa selst.“

Verkefnið er samstarfsverkefni Landsbjargar og Skógræktarfélags Íslands. Þar er formaður Jónatan Garðarsson, hann er að vonum ánægður með þetta verkefni. „Við tökum við þessum græðlingum og næsta sumar munum við planta þessu í nýjum skógi við Þorlákshöfn. Þetta samstarf er mjög jákvætt og þegar fram líða stundir verður þessi skógur orðinn stór og fallegur sem allir geta heimsótt og átt góðar stundir í,“ segir Jónatan. „Þessi hugmynd Rakelar Kristinsdóttur mun vonandi verða þess valdandi að einstaklingar geti stutt við björgunarsveitirnar og hugað að náttúrunni í leiðinni.“

Jón Svanberg segir flugeldasöluna um þessi áramót hafa verið kannski örlítið minni en um síðustu áramót.

„Sumir voru á pari en aðrir aðeins undir því sem var í fyrra. Það er líklegt að við verðum mjög nálægt sölunni um síðustu áramót. Þetta fer auðvitað í smá sveiflum eins og gengur og gerist.“

Jón segir rótarskotið hafa laðað að nýja viðskiptavini. „Það kom fólk inn á sölustaðina sem hafði aldrei stigið fæti inn til okkar. Nú gerðu þeir það til að kaupa rótarskot sem er auðvitað frábært fyrir alla. Því bindum við miklar vonir við þessa fjáröflun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×