Vísa þýska sendiherranum frá Venesúela Gunnar Reynir Valþórsson og Kjartan Kjartansson skrifa 7. mars 2019 08:01 Kriener sendiherra (t.h.) með Juan Guaidó þegar sá síðarnefndi hitti evrópska sendiherra um miðjan febrúar. Vísir/EPA
Stjórnvöld í Venesúela gáfu sendiherra Þýskalands í landinu fjörutíu og átta klukkustundir til að koma sér úr landi. Daniel Kriener var á meðal þeirra diplómata sem aðstoðuðu stjórnarandstæðinginn Juan Guaidó við að komast aftur til landsins eftir ferðalag hans um Suður Ameríku þar sem hann aflaði málstað sínum fylgis, en hann hefur lýst sig réttmætan forseta landsins og sakar Nicolas Maduro forseta um valdarán. Þjóðverjar eru á meðal þeirra ríkja sem hafa viðurkennt Guaídó og tilkall hans til forsetaembættisins og með því að aðstoða hann við að komast inn í landið að nýju segja yfirvöld í Venesúela að Þjóðverjar séu að skipta sér af innanríkismálum landsins. Í yfirlýsingu frá ríkisstjórninni í gær voru Kriener gefnar 48 klukkustundir til að hafa sig á brott. Sakaði hún sendiherrann jafnframt um að hafa tekið sér stöðu með „öfgahlutum“ stjórnarandstöðunnar í landinu. Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði í gær að hann hefði ákveðið að kalla Kriener heim til skrafs og ráðagerðar. Fordæmdi hann ákvörðun stjórnvalda í Caracas sem hann sagði óskiljanlega og hjálpaði ekki til við að draga úr spennu. „Stuðningur okkar og Evrópu við Juan Guidó stendur heill. Kriener sendiherra stendur sig prýðilega í Caracas, þar á meðal undanfarna daga,“ sagði Maas í yfirlýsingu.
Venesúela Þýskaland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira