Sonur lögregluþjóns grunaður um þrjár íkveikjur Samúel Karl Ólason skrifar 11. apríl 2019 23:02 Kveikt var þremur kirkjum í Opelousas á tíu dögum. AP/Leslie Westbrook
Lögreglan í Opelousas í Lousiana í Bandaríkjunum hefur handtekið son lögregluþjóns sem grunaður er um að hafa kveikt í þremur kirkjum, sem sóttar eru af þeldökkum íbúum, á tíu dögum. Sá grunaði heitir Holden Matthews og er 21 árs gamall. Faðir hans hjálpaði til við handtökuna. Eric Rommal, frá Alríkislögreglu Bandaríkjanna, segir yfirvöld sannfærð um að rétti sökudólgurinn sé í haldi. Notast var við upptökur úr öryggismyndavélum og kvittun frá Walmart til að finna Matthews og handtaka hann í gær. Samkvæmt AP fréttaveitunni var óttast að hann ætlaði sér að kveikja í fleiri kirkjum og því var mikið kapp á að finna hinn seka.Lögreglan hefur ekki viljað kalla íkveikjurnar hatursglæp en segir að verið sé að kanna tilefni þeirra.Brunninn bensínbrúsi fannst á vettvangi einnar íkveikjunnar og tókst að rekja hann til Walmart og þaðan til Matthews, þar sem hann keypti brúsann, kveikjara og ýmislegt fleira með eigin debetkorti, þremur tímum fyrir fyrstu íkveikjuna. Þá sýndu gögn úr farsímaturnum að hann var á í það minnsta nálægt öllum íkveikjunum. Fógetinn Bobby Guidroz sagði AP fréttaveitunni að faðir Matthews hefði verið miður sín þegar honum var tilkynnt að sonur hans væri grunaður. Þá sagði Guidroz að faðir Matthews hefði sent hann á stað þar sem auðvelt væri að handtaka hann, án þess að fara nánar út í það. Hámarksrefsing fyrir að kveikja í bænahúsi er fimmtán ár, þannig að sú hámarksrefsing sem Matthews stendur frammi fyrir er 45 ár.
Bandaríkin Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Sjá meira