Þjálfari bikarmeistaranna framlengir Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. september 2019 17:18 Alfreð fagnar bikarmeistaratitlinum. vísir/daníel
Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari bikarmeistara Selfoss, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Undir stjórn Alfreðs varð Selfoss bikarmeistari í síðasta mánuði eftir 2-1 sigur á KR á Laugardalsvelli. Þetta var fyrsti stóri titilinn sem fótboltalið frá Selfossi vinnur. Selfoss er öruggt með að enda í 3. sæti Pepsi Max-deildar kvenna. Liðið tekur á móti ÍBV í lokaumferðinni á laugardaginn. Alfreð tók við Selfossi eftir að liðið féll úr Pepsi-deildinni 2016. Hann kom Selfyssingum upp úr Inkasso-deildinni í fyrstu tilraun og í fyrra endaði Selfoss í 6. sæti Pepsi-deildarinnar. „Ég er ótrúlega ánægður með að geta haldið áfram hér á Selfossi og að menn séu tilbúnir að taka næsta skref. Ég er mjög ánægður með það umhverfi sem ég er að vinna í og við getum við mjög stolt af því sem við höfum verið að gera undanfarin þrjú ár. Það hefur verið mikil og góð uppbygging á liðinu og við erum komin á þann stað sem við viljum vera á. Ég get fullyrt að það eru fá félög á landinu sem hugsa eins vel um kvennaliðin sín. Hér er frábært starfsfólk og aðstaða og margir sem vinna að því af heilum hug að gera umgjörðina sem besta,“ segir Alfreð í fréttatilkynningu frá Selfossi. Alfreð er einnig aðalþjálfari hjá Knattspyrnuakademíu Íslands í FSu. „Akademían er frábær vettvangur fyrir unga leikmenn, bæði stráka og stelpur, til þess að bæta sig. Það hefur verið góð samvinna milli félagsins og akademíunnar og hér á Selfossi er allt til alls fyrir leikmenn sem vilja bæta sig meira sem fótboltamenn og ná enn betri árangri,“ segir Alfreð.
Árborg Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira