Alfreð: Takk Dagur Sigurðsson, ég veit hvaðan orðrómurinn kemur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2018 12:30
Framtíð Christian Prokop sem þjálfara þýska handboltalandsliðsins ræðst í dag en Alfreð Gíslason hefur verið orðaður við starfið. Kiel kannast þó ekkert við að hafa heyrt í þýska handboltasambandinu og Alfreð sjálfur gerir grín að öllu fjaðrafokinu. Það er aðeins eitt ár síðan að Christian Prokop tók við þýska landsliðinu af Degi Sigurðssyni en árangur liðsins á EM í Króatíu olli miklum vonbrigðum. Liðið mætti sem Evrópumeistari en fór heim sem níunda besta handboltalandslið Evrópu. Mikið hefur verið skrafað og skeggrætt um komu Alfreð Gíslasonar að þýska landsliðinu en samningur Alfreðs og Kiel rennur ekki út fyrr en árið 2019. THW Kiel setti frétt um málið inn á heimasíðu sína í dag þar sem kemur fram að það búast flestir við því að Christian Prokop verði látinn fara. Í fréttinni á heimasíðu Kiel kemur ýmislegt fram þar á meðal að Kiel hafi ekki fengið fyrirspurn frá þýska handboltasambandinu og því sér ekkert til í því að þýska sambandið sé búið að gera samning við Alfreð Gíslason.Dieser Moment, wenn die Gerüchteküche wieder einmal brodelt. Gislason: „Danke, Dagur Sigurdsson. Ich weiß, woher... https://t.co/04BGZ9wH7R — THW Kiel (@thw_handball) February 19, 2018 Samingur Alfreðs og Kiel er í gildi og því þyrfti þýska sambandið alltaf að ná samkomulagi við Kiel eigi Alfreð að taka við þýska landsliðinu. Alfreð sjálfur grínaðist með orðróminn á hliðarlínunni í leik á móti Álaborg í Meistaradeildinni um helgina. „Takk Dagur Sigurðsson, ég veit hvaðan orðrómurinn kemur,“ sagði Alfreð og glotti á hliðarlínunni. Það virðist vera sem að ummæli Dags Sigurðssonar í Seinni bylgjunni á dögunum hafi komið sögusögnunum um Alfreð á fulla ferð í Þýskalandi. Christian Prokop var með fimm ára samning við því er það mikið fyrirtæki fyrir þýska sambandið að láta hann fara. Hinsvegar hefur það komið fram í þýskum fjölmiðlum að nokkrir leikmenn landsliðsins hafi hótað því að hætta að gefa kost á sér haldi Christian Prokop áfram með liðið. Þýska sambandið borgaði 500 þúsund evrur til að losa Christian Prokop frá SC DHfK Leipzig og það gæti líka verið dýrt að kaupa upp samninginn hans sem rennur ekki út fyrr en árið 2022. Thank you @weissewandaalborg! Your support was fantastic and helped a lot! #wearekiel #wirsindkiel #weissewand Fotos: @saschaklahn A post shared by THW Kiel (@thwhandball) on Feb 18, 2018 at 11:33am PST
Handbolti Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Fleiri fréttir Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Sjá meira