Nágrannar björguðu konu úr brennandi húsi á Kjalarnesi Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 10. júlí 2018 11:27 Auk konunnar var tveimur köttum bjargað úr íbúðinni. Vísir/Vilhelm
Kona var flutt á slysadeild vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kom upp í íbúðarhúsi á Kjalarnesi í morgun. Nágrannar hjálpuðu konunni út um eldhúsglugga á síðustu stundu, að sögn aðstoðarvarðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. „Það kom tilkynning rétt fyrir klukkan sjö um eld á Kjalarnesi. Það er nágranni á efri hæð sem tilkynnir um eld á neðri hæð. Hann verður var við reyk og hleypur niður. Hann vekur íbúa þar inni, henni var bjargað út um glugga á síðustu stundu,“ segir Sigurjón Hendriksson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Sigurjón segir að konan hafi fundið vel fyrir hitanum af eldinum og sóti sömuleiðis. Ekki er talið að hún sé alvarlega slösuð en Sigurjón segir að það hafi staðið tæpt.Gekk vel að slökkva eldinn Fleiri nágrannar komu sem aðstoðuðu við að koma konunni út um glugga og höfðu slökkvistörf, bæði með slökkvitækjum úr heimahúsum og garðslöngu. Eldurinn hafi að megninu til verið í kjallara hússins og að slökkvistarf hafi gengið vel þegar slökkvilið bar að garði. „Þeir voru mjög fljótir að slökkva eftir að nágrannarnir voru þarna búnir að nota þarna nokkur slökkvitæki og sprauta með garðslöngunni. Það var auðvelt að hemja eldinn.“ Auk konunnar voru tveir kettir inni í íbúðinni sem reykkafarar björguðu úr íbúðinni. Þriðji kötturinn kom sér sjálfur út, að sögn Sigurjóns. Ekki er vitað um eldsupptök og rannsókn stendur yfir en að sögn Sigurjóns var eldurinn fyrst og fremst í eldhúsi íbúðarinnar.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fleiri fréttir Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Sjá meira