Mannskæðasti bruni í Suður-Kóreu í áratug Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. janúar 2018 06:37 Myndir frá vettvangi sýna mikinn reyk og slökkviliðsmenn bjarga sjúklingum út úr byggingunni. Vísir/Epa
Að minnsta kosti fjörutíu og einn er látinn og rúmlega sjötíu slasaðir eftir mikinn bruna sem kom upp á sjúkrahúsi í Suður-Kóreu í nótt. Svo virðist sem eldurinn hafi blossað upp á bráðadeild spítalans, sem er í borginni Miryang, en um 200 sjúklingar voru inni í byggingunni. Borgin er um 270 kílómetra suðaustur af höfuðborginni Seúl. Þetta er mannskæðasti bruni í Suður-Kóreu í áratug og óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar, þar sem margir hinna slösuðu eru í alvarlegu ástandi. Flestir hinna látnu virðast hafa dáið úr reykeitrun, að því er slökkviliðsmenn á staðnum segja í samtali við Yonhap fréttastofuna.Skemmdir á spítalanum og nærliggjandi dvalarheimili eru miklar.Vísir/epaEldsupptök eru enn ókunn að sögn slökkviliðsstjórans Choi Man-woo. „Hinir látnu höfðu verið á spítalanum og á samliggjandi dvalarheimili. Einhverjir létust þegar var verið að flytja þá á annað sjúkrahús,“ segir slökkviliðsstjórinn. Hann bætir við að eldurinn hafi komið upp um klukkan 07:30 að staðartíma og að um þrjár klukkustundir hafi tekið að slökkva eldinn. Slökkviliðsmönnum tókst að bjarga rúmlega 90 manns af dvalarheimilinu áður en það varð eldinum að bráð. Forseti Suður-Kóreu, Moon Jae-in, boðaði til neyðarfundar í ríkisstjórn sinni þar sem næstu skref voru rædd. Fjölmargir embættismenn fóru til borgarinnar og vottuðu aðstandendum samúð sína.
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira