Stórleikur Helenu dugði skammt gegn Bosníu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. febrúar 2018 08:00 Helena Sverrisdóttir. Vísir/Ernir
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er enn án stiga í A-riðli undankeppni EM 2019. Íslensku stelpurnar mættu Bosníu í Sarajevo á laugardaginn og töpuðu með 30 stiga mun, 97-67. Íslenska liðið spilaði vel í fyrri hálfleik. Staðan að honum loknum var 40-36, Bosníu í vil. Hildur Björg Kjartansdóttir minnkaði muninn í eitt stig, 41-40, í upphafi seinni hálfleiks. Þá settu þær bosnísku í fluggírinn og íslenska liðið sá ekki til sólar það sem eftir lifði leiks. Bosnía vann þriðja leikhlutann 32-14 og þegar lokaflautið gall munaði 30 stigum á liðunum, 97-67. Skotnýting bosníska liðsins var miklu betri en þess íslenska (53,6%-35,1%) og þá rústaði Bosnía frákastabaráttunni 46-28. Helena Sverrisdóttir átti stórleik í íslenska liðinu í fyrradag. Hún skoraði 32 stig og var stigahæst á vellinum. Helena tók einnig sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Hún hitti úr þremur af fjórum þriggja stiga skotum sem hún tók og nýtti 15 af 16 vítaskotum sínum. Frábær frammistaða hjá Hafnfirðingnum. Helena, sem lék sinn 67. landsleik á laugardaginn, er fjórði stigahæsti leikmaður undankeppninnar með 24,0 stig að meðaltali í leik. Hún er líka í 7. sæti á listanum yfir framlagshæstu leikmenn undankeppninnar. Hildur Björg spilaði einnig ágætlega í leiknum á laugardaginn. Hún skoraði 16 stig og tók átta fráköst. Þær Helena skoruðu samtals 48 af 67 stigum Íslands. Enginn annar leikmaður skoraði meira en fjögur stig. Íslenska liðið er nú komið til Svartfjallalands þar sem það mætir heimakonum í Podgorica á miðvikudaginn. Svartfellingar eru með fimm stig í A-riðli, líkt og Bosníumenn og Slóvakar. Leikurinn á miðvikudaginn hefst klukkan 18.00 að íslenskum tíma.
Birtist í Fréttablaðinu Körfubolti Mest lesið „Ætla ekki að segja hvað gerðist í þriðja hring“ Sport Guðjón Ingi fagnaði í nótt á nýju brautarmeti Sport Reyna allt til að stöðva að UEFA setji Ísrael í bann Fótbolti Guðmundur rekinn frá Fredericia Handbolti Haaland sýndi morðhótun eftir að hafa náð Solskjær Enski boltinn „Ömurleg frammistaða hjá gæjunum í gulu búningunum“ Íslenski boltinn Braut lítt notaða reglu: „Þetta er mjög áhugavert“ Enski boltinn Markatalan 10-1 eftir að Lárus Orri fann liðið sitt Íslenski boltinn Segir Man. City hafa verið beitt ósanngirni fyrir stórleikinn Enski boltinn Sjáðu vítadóminn í Víkinni og öll mörk gærdagsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Sjá meira