Helena ein af fimm bestu leikmönnum Evrópukeppninnar um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2018 11:15 Helena Sverrisdóttir er með dóttur sína með í keppnisferðinni til Bosníu og Svartfjallalands. KKÍ
Frábær frammistaða Helenu Sverrisdóttur með íslenska kvennalandsliðinu um helgina kom ekki í veg fyrir 30 stig tap á móti Bosníu en kom henni aftur á móti í úrvalslið umferðarinnar í Evrópukeppni kvenna. Helena Sverrisdóttir var ein af fimm bestu leikmönnum helgarinnar að mati evrópska körfuboltasambandsins. Helena var allt í öllu í liði Íslands í 67-97 tapi á móti Bosníu en hún skoraði 32 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Helena hitti úr 15 af 16 vítaskotum sínum og 3 af 4 þriggja stiga skotum í leiknum. Helena fékk alls 34 framlagsstig í leiknum en það var 20 stigum meira en sú næesta í íslenska liðinu sem var Hildur Björg Kjartansdóttir. Hér fyrir neðan má sjá úrvalslið helgarinnar. Helena er í liðinu ásamt leikmönnum frá Bosníu, Litháen, Króatíu og Ísrael. Það er mikið afrek fyrir okkar konu að koma til greina í þetta lið hvað þá að vera valinn þar sem íslenska liðið tapaði svona stórt. Alysha Clark var í sigurliði Ísrael á móti Grikklandi þar sem hún var með 27 sitg, 16 fráköst og 6 stoðsendingar. Marica Gajic var í sigurliði Bosníu á móti Íslandi þar sem hún skoraði 31 stig og tók 16 fráköst. Antonija Sandric var í sigurliði Króatíu á móti Makedóníu þar sem hún skoraði 22 stig og gaf 8 stoðsendingar. Gintarė Petronyte var í sigurliði Litháen á móti Albaníu þar sem hún var með 24 stig og 11 fráköst.
Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Íslenski boltinn Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Íslenski boltinn Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Fleiri fréttir Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Sjá meira