Rússneski forsetinn úr 24 á Dillon í sumar Benedikt Bóas skrifar 9. maí 2018 06:00 Logan Bandaríkjaforseti og Nick Jameson sem rússneski forsetinn Suvarov. FOX
Hann byrjaði að koma sem gestur. Þannig virkar þetta. Við spilum eitt sett kannski klukkutíma og svo er bara skipt inn á. Fólk kemur inn í þetta og það hafa alls konar spilarar dottið inn og oft er mikil dýnamík og skemmtun á sviðinu,“ segir tónlistarmaðurinn Beggi Smári en í kvöld hefst Blues Jam á Dillon. Með Begga eru þeir Pétur Sigurðsson og Friðrik Geirdal í Bexband auk Nicks Jameson sem er þekktur tónlistarmaður og leikari. Hann hefur búið hér í þrjú ár. Trúlega er hann þekktastur sem rússneski forsetinn Yuri Suvarov í spennuþáttaröðinni 24. Þá lék hann einnig í Lost og King of Queens svo fátt eitt sé nefnt.Bexbandið mun spila á Dillon í allt sumar og geta gestir og gangandi gengið inn og tekið þátt í gleðinni.Suvarov var mikill vinur Bandaríkjaforseta og kom alls fyrir í þremur þáttaröðum. Þegar hann birtist í áttundu seríu var hann búinn að sitja í sjö ár sem forseti. Geri aðrir betur. 24 fékk fjölmörg verðlaun, eins og 20 Emmy-verðlaun, Golden Globe og Screen Actors Guild verðlaun enda ótrúlega vel heppnuð sería. „Við tókum smá hlé en erum að koma aftur í sumar. Það var alltaf troðið og góð stemning á þessum kvöldum,“ segir Beggi. „Hann var í gamla daga í goðsagnakenndu bandi, Foghat, sem gerði meðal annars Slow Ride, sem er geggjað lag,“ segir hann. Það kostar ekkert inn á kvöldið og hlakkar Beggi mikið til að plokka gítarinn á ný. „Maður veit aldrei hvað kvöldið ber í skauti sér. Það getur alveg einhver komið sem kann minna og það er skemmtilegt en stundum koma mjög góðir spilarar, íslenskir og erlendir.“
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Fleiri fréttir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Sjá meira