Þúsundir íbúa Flórídaríkis flýja heimili sín vegna Alberto Gunnar Reynir Valþórsson og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa 28. maí 2018 08:20 Dökk ský eru nú yfir Flórída en búist er við því að stormurinn Alberto nái landi þar í dag. Vísir/Getty
Þúsundir íbúa Flórídaríkis í Bandaríkjunum hafa flúið heimili sín við ströndina en búist er við því að stormurinn Alberto nái landi þar í dag. Alberto hefur verið að sækja í sig veðrið á Mexíkóflóa undanfarna daga og stefnir nú hraðbyri í átt að Flórída og er óttast að hann geti gert þar mikinn usla. Stormurinn var í um 165 kílómetra fjarlægð, suður af Apalachicola á miðnætti og mældist vindhraðinn þá um 105 kílómetrar á klukkustund. Þá fylgja miklar rigningar veðrinu sem gæti haft áhrif allt frá Mississippi og til Georgíu. Alberto er fyrsti stormurinn sem fær nafn á Atlantshafi þetta misserið, en yfirleitt er talað um að Fellibyljatímabilið hefjist fyrsta júní. Mikil ferðahelgi var í Bandaríkjunum um helgina og er talið að fellibylurinn muni hafa töluverð áhrif á samgöngur í dag, samkvæmt frétt Reuters. Viðvörun var gefin út á laugardag og neyðarástandi lýst yfir í öllum 67 sýslum Flórída. Rick Scott ríkisstjóri Flórída sagði á Twitter að íbúar ættu alls ekki að hunsa tilmæli um að yfirgefa heimili sín vegna Alberto. Hann er með 5.500 viðbragðsaðila tilbúna í útkall ef þörf er á.
Veður Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira