Á tímabili leit út fyrir að Sólrún Diego, samfélagsmiðlastjarnan mikla, ætlaði sér að setja strik í reikninginn og vera það sem kallað hefur verið Svarti hestur jólabókaflóðsins. Sólrún var það að einhverju leyti en þegar upp er staðið hafnar hún í 8. sæti með bók sína „Heima“ – sem vissulega er frábær árangur höfundar sem er að senda frá sér sína fyrstu bók.

Ragnar Jónasson er hástökkvarinn
„Ragnar Jónasson fer úr fimmtánda sæti árslistans 2016 upp í fimmta sæti í ár og verður því að teljast einni helsti hástökkvari landsliðsskálda. Þorgrímur Þráinsson heldur sig við sautjánda sætið annað árið í röð en Stefán Máni fellur hins vegar úr áttunda sæti niður í það tólfta,“ segir Bryndís og setur upp lesgleraugun.
„Sé litið til skálda sem síðast sendu frá sér bækur fyrir tveimur árum þá var Ólafur Jóhann Ólafsson í fjórtánda sæti árið 2015 en stekkur nú upp í sjötta sæti, yfir Jón Kalman, sem þó er einnig á uppleið, fer úr tíunda sæti í það sjöunda.
Sé litið til mest seldu titlana má segja að hlutfall íslenskra skáldverka hafi verið hærra en undanfarin þrjú ár þar á undan, á kostnað annarra flokka.“
Með kynjagleraugun á nefinu
En, það er fleira matur en feitt kjet. Skoða má þessa lista út frá ýmsum sjónarhornum og nú þegar kynjafræðin virðist alpha og omega alls sem er á Íslandi er ef til vill vert að setja slíka mælistiku við listana, sem annað.

Konur lesa meira en karlar
Þetta er athyglisvert og gengur að einhverju leyti gegn þeirri kenningu sem hefur verið ráðandi að konur stýri að verulegu leyti menninganeyslunni? Nei. Ekki alveg. Bryndís bendir á að konur kaupi hins vegar fleiri bækur til gjafa og teljast þannig öflugri kaupendur bóka.
Og konur lesa jafnframt meira en karlar. Þarna hafa konur sem sagt alltaf yfirhöndina,segir Bryndís og sópar öllum efasemdum um ráðandi stöðu kvenna í menningargeiranum þar með út af borðinu. Og þó:
Karlar ráðandi meðal söluhæstu höfunda
„Þegar tíu söluhæstu bækur síðasta árs eru hins vegar kyngreindar þá eru átta eftir karlmenn og aðeins tvær eftir konur. Árið á undan voru hins vegar fjórar konur á meðal höfunda tíu mest seldu bókanna,“ segir Bryndís með nokkrum trega í röddinni.

Já, það var og.
Árslistinn 2017 – 20 söluhæstu titlar Bóksölulistans
- Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
- Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
- Amma best - Gunnar Helgason
- Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson
- Mistur - Ragnar Jónasson
- Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
- Heima - Sólrún Diego
- Útkall, Reiðarslag í Eyjum - Óttar Sveinsson
- Syndafallið - Mikael Torfason
- Sönglögin okkar - Ýmsir/Jón Ólafsson
- Skuggarnir - Stefán Máni
- Með lífið að veði - Yeomne Park
- Þúsund kossar - Jóga - Jón Gnarr
- Gagn og gaman - Helgi Elíasson og Ísak Jónsson
- Blóðug jörð - Vilborg Davíðsdóttir
- Henri hittir í mark - Þorgrímur Þráinsson
- Nornin - Camilla Läckberg
- Löggan - Jo Nesbø
- Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
- Myrkrið veit - Arnaldur Indriðason
- Gatið - Yrsa Sigurðardóttir
- Mistur - Ragnar Jónasson
- Sakramentið - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Saga Ástu - Jón Kalman Stefánsson
- Skuggarnir - Stefán Máni
- Blóðug jörð - Vilborg Davíðsdóttir
- Elín, ýmislegt - Kristín Eiríksdóttir
- Ekki vera sár - Kristín Steinsdóttir
- Passamyndir - Einar Már Guðmundsson
- Smartís - Gerður Kristný
- Örninn og fálkinn - Valur Gunnarsson
- Búrið - Lilja Sigurðardóttir
- Refurinn - Sólveig Pálsdóttir
- Dalalíf IV - Guðrún frá Lundi
- Morðið í Gróttu - Stella Blómkvist
- Stúlkan sem enginn saknaði - Jónína Leósdóttir
- Aflausn - Yrsa Sigurðardóttir
- Í skugga drottins - Bjarni Harðarson
- Ég man þig - Yrsa Sigurðardóttir

- Syndafallið - Mikael Torfason
- Með lífið að veði - kilja - Yeomne Park
- Þúsund kossar - Jóga - Jón Gnarr
- Konan í dalnum og dæturnar sjö - Guðmundur G. Hagalín
- Rúna - Örlagasaga - Sigmundur Ernir Rúnarsson
- Minn Tími - saga Jóhönnu Sigurðardóttur - Páll Valsson
- Með lífið að veði – innbundin - Yeomne Park
- Gunnar Birgisson - Orri Páll Ormarsson
- Ekki gleyma mér - Kristín Jóhannsdóttir
- Það sem dvelur í þögninni - Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
- Amma best - Gunnar Helgason
- Þitt eigið ævintýri - Ævar Þór Benediktsson
- Sönglögin okkar - Ýmsir/Jón Ólafsson
- Henri hittir í mark - Þorgrímur Þráinsson
- Flóttinn hans afa - David Walliams
- Jól með Láru - Birgitta Haukdal
- Verstu börn í heimi - David Walliams
- Vögguvísurnar okkar - Ýmsir/Jón Ólafsson
- Lára fer í sund - Birgitta Haukdal
- Bieber og Botnrassa - Haraldur F. Gíslason
- Nornin - Camilla Läckberg
- Löggan - Jo Nesbø
- Sonurinn - Jo Nesbø
- Afætur - Jussi Adler-Olsen
- Litla bakaríið við Strandgötu - Jenny Colgan
- Eftirlýstur - Lee Child
- í skugga valdsins - Viveca Sten
- Litla bókabúðin í hálöndunum - Jenny Colgan
- Stúlkan sem gat ekki fyrirgefið - Stieg Larsson/David Lagercrantz
- Hús tveggja fjölskyldna - Lynda Cohen Loigman

- Gamanvísnabókin - Ragnar Ingi Aðalsteinsson tók saman
- Dvalið við dauðalindir - Valdimar Tómasson
- Ljóð muna rödd - Sigurður Pálsson
- Heilaskurðaðgerðin - Dagur Hjartarson
- Íslensk öndvegisljóð - Páll Valsson
- Kóngulær í sýningargluggum - Kristín Ómarsdóttir
- Hreistur - Bubbi Morthens
- Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna - Silja Aðalsteinsdóttir valdi
- Bónus ljóð - Andri Snær Magnason
- Íslensk kvæði - Vigdís Finnbogadóttir valdi
- Gagn og gaman - Helgi Elíasson og Ísak Jónsson
- Geimverur - leitin að lífi í geimnum - Sævar Helgi Bragason
- Jólalitabókin - Bókafélagið
- Kvöldsögur fyrir uppreisnagjarnar stelpur - Elena Favilli/Francesca Cavallo
- Góðar gátur - Guðjón Ingi Eiríksson
- 13 þrautir jólasveinanna: jólaskemmtanir - Huginn Þór Grétarsson
- Brandarar og gátur 2 - Huginn Þór Grétarsson
- Hetjurnar á HM 2018 - Illugi Jökulsson
- Skrifum stafina - Jessica Greenwell
- Skafmyndalist - Setberg
- Er ekki allt í lagi með þig? - Elísa Jóhannsdóttir
- Vertu ósýnilegur - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Galdra Dísa - Gunnar Theodór Eggertsson
- Hvísl hrafnanna - Malene Sølvsten
- Sölvasaga unglings - Arnar Már Arngrímsson
- Vetrarfrí - Hildur Knútsdóttir
- Endalokin : Gjörningaveður - Marta Hlín Magnadóttir/Birgitta Elín Hassell
- Harry Potter og bölvun barnsins - J.K. Rowling
- Vetrarhörkur - Hildur Knútsdóttir
- Nei, nú ert'að spauga, Kolfinna - Hrönn Reynisdóttir

- Heima - Sólrún Diego
- Útkall: Reiðarslag í Eyjum - Óttar Sveinsson
- Til orrustu frá Íslandi - Illugi Jökulsson
- Hérasprettir - Baldur Grétarsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson
- Híf opp! Gamansögur af íslenskum sjómönnum - Guðjón Ingi Eiríksson
- Hönnun: leiðsögn í máli og myndum - Ýmsir
- Mamma: Hlý hugrenning fyrir hvern dag ársins - Pam Brown
- Þrautgóðir á raunastund - Steinar J. Lúðvíksson
- Vargöld á Vígaslóð - Magnús Þór Hafsteinsson
- Hrakningar á heiðavegum 2 - Pálmi Hannesson/Jón Eyþórsson
- Pottur, panna og Nanna - Nanna Rögnvaldardóttir
- Átta vikna blóðsykurkúrinn - Dr. Michael Mosley
- Stóra bókin um sous vide - Viktor Örn Andrésson
- Gulur, rauður grænn & salt - Berglind Guðmundsdóttir
- Veisluréttir Hagkaups - Friðrika Hjördís Geirsdóttir
- Himneskt - að njóta - Sólveig Eiríksdóttir
- Matarást - Nanna Rögnvaldardóttir
- Jólaprjón - Guðrún S. Magnúsdóttir
- Heklaðar tuskur - C. S. Rasmussen/S. Grangaard
- Litla vínbókin - Jancis Robinson