Vildi að hann hefði ekki hikað Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 27. september 2018 07:00 Puigdemont segir spænsku ríkisstjórnina hafa platað sig. Getty/Andia
Carles Puigdemont, útlagi og fyrrverandi forseti héraðsstjórnar Katalóníu, sér eftir því að hafa ekki lýst yfir sjálfstæði héraðsins um leið og niðurstöður atkvæðagreiðslu þess efnis í byrjun október 2017 lágu fyrir. Þetta sagði Puigdemont í viðtali við belgíska miðilinn De Morgen í gær. Sjálfstæði var ekki lýst yfir fyrr en á þingfundi þann 27. október, eftir að Puigdemont hafði gefið út afar óljósar yfirlýsingar á dögunum eftir kosningar. Sú yfirlýsing var einhliða og tóku yfirvöld í Madríd ekki mark á henni enda álítur hæstiréttur Spánar atkvæðagreiðslu Katalóna ólöglega. Puigdemont er, ásamt nokkrum fyrrverandi ráðherrum héraðsstjórnarinnar, á flótta vegna ákæru fyrir uppreisn gegn spænska ríkinu. Enn fleiri ráðherrar eru í haldi á Spáni. Í viðtali við De Morgen sagðist Puigdemont hafa hikað til að gefa Spánverjum tækifæri á að mæta til viðræðna. Ríkisstjórnin hefði sent honum „skýr skilaboð“ þess efnis. „En þau reyndust gildra. Ég held að yfirvöld hafi einfaldlega viljað kaupa sér tíma til að virkja 155. grein stjórnarskrárinnar,“ sagði Puigdemont en með virkjun hennar tók ríkisstjórnin völdin í héraðinu. Puigdemont kallaði í gær eftir því að Pedro Sánchez, sem tók við forsætisráðuneytinu í júní, ynni að því að draga úr spennunni á milli Katalóníu og Spánar. „Það er ekki hægt að segjast vilja ræða málin en segja á sama tíma að viðmælendur þínir séu hættulegir uppreisnarmenn.“ Þá kallaði hann eftir því að mál ráðherra héraðsstjórnarinnar fyrrverandi færu af borði spænskra dómstóla „þar sem öfgaöfl úr stjórnartíð Francos eru enn við völd“. Útlaginn kallaði eftir því um helgina að Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, tæki að sér hlutverk sáttasemjara í deilunni. Því hafnaði aðstoðarmaður Tusks í gær og sagði að Spánverjar ættu að leysa málið sjálfir.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira