Rafmagn fór af víða vegna bilunar: Umferðarljós voru óvirk á Miklubraut 27. september 2018 15:40 Rafmagnslaust var í miðbæ Reykjavíkur á fjórða tímanum í dag. vísir/anton brink
Háspennubilun er í veitustöð við Barónsstíg og því rafmagnslaust þar í kring. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur fór stöðin út fyrir nokkrum mínútum og er ekki ljóst hversu umfangsmikil bilunin er eða hvenær hægt verður að hefja viðgerð. Var rafmagnslaust víða í miðbæ Reykjavíkur og umferðarljós víða óvirk. Rafmagn komst aftur á að hluta þegar klukkan var 20 mínútur í fjögur. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum, dótturfyrirtæki Orkuveitur Reykjavíkur, er viðgerð hafin en ekki er vitað hve langan tíma hún mun taka. Er fólki bent á að slökkva á þeim rafmagnstækjum, sem ekki slökkva á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Það á sérstaklega við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Eins ráðleggjum við þér að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp. Uppfært klukkan 15:57: Rafmagn fór af hluta af hverfi 105 og 107, eða Hlíðum og Vesturbæ. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur er rafmagn komið á stórum hluta þess svæðis og er vonast til að viðgerð ljúki fljótlega.
Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Fleiri fréttir „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Sjá meira