Innlent

Vísuðu frá kæru vegna hávaða frá sláttuvélum á golfvellinum í Grafarholti

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Golfvellir þurfa daglegan slátt yfir sumartímann.
Golfvellir þurfa daglegan slátt yfir sumartímann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (ÚUA) vísaði á dögunum frá kæru íbúa í Ólafsgeisla í Grafarholti sem kvartað hafði yfir hávaða frá sláttuvélum á Grafarholtsvelli.

Í júlí 2017 kvartaði maðurinn til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna hávaða frá grasslætti á vellinum en hann hæfist klukkan hálf sjö að morgni á flötum fyrir neðan hús hans. Heilbrigðiseftirlitið sendi honum svarbréf sex vikum síðar þar sem mælingar á hljóðstigi hafi ekki sýnt fram á að hávaði færi yfir viðmiðunarmörk eftir klukkan sjö á morgnana. Því yrði ekki frekar aðhafst í málinu.

Húseigandinn kærði þessa niðurstöðu en hann hefði um árabil kvartað yfir hávaða frá vellinum. Benti hann á að ómögulegt væri að ná sambandi við eftirlitið símleiðis þegar sláttur væri í gangi og að hann skildi illa hvernig væri hægt að sinna kvörtunum og kanna réttmæti þeirra þegar atburðurinn hafi átt sér stað.

Í niðurstöðu ÚUA segir að önnur hljóðmæling hafi verið gerð í júlí 2018. Sú hafi leitt í ljós að hljóðstig hafi mælst yfir næturmörkum. Af þeim sökum beindi heilbrigðiseftirlitið þeim tilmælum til Golfklúbbs Reykjavíkur að sláttur á brautum fjögur til níu hæfist ekki fyrir sjö á virkum dögum og tíu um helgar. Þá stendur til að kanna þann möguleika að nota rafmagnssláttuvélar sem minna heyrist í.

ÚUA taldi að kvörtun eigandans sneri að því að ekkert hafi verið aðhafst í málinu. Þar sem heilbrigðiseftirlitið greip til aðgerða í millitíðinni var það réttarástand úr sögunni og málinu vísað frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×