Nordea dregst inn í peningaþvottarhneykslið Kjartan Kjartansson skrifar 17. október 2018 11:43 Nordea er stærsti banki Norðurlandanna. Vísir/EPA
Nordea, stærsti banki Norðurlandanna, hefur bæst í hóp norrænna fjármálastofnana sem sakaðar eru um peningaþvætti og önnur fjársvik. Þekktur gagnrýnandi rússneskra stjórnvalda hefur kært framferði bankans til sænskra og norskra yfirvalda. Í kærunni vegna Nordea er bankinn sakaður um að hafa verið notaður til þess að þvo á þriðja hundruð milljóna dollara illa fengins fjár úr stóru fjársvikamáli í Rússlandi. Féð hafi runnið í gegnum 365 reikninga í Nordea-bankanum. Kærandinn er Bill Browder, forstjóri Hermitage-fjárfestingasjóðsins. Endurskoðandi hans, Sergei Magnitskí, var barinn til ólífis í rússnesku fangelsi eftir að hann fletti hulunni ofan af fjársvikunum. Browder er ötull gagnrýnandi stjórnvalda í Kreml.Financial Times segir að Browder hafi látið sænska saksóknara fá gögn sem kalli á rannsókn á mögulegum fjársvikum, fölsunum, peningaþvætti og óheiðarlegum vinnubrögðum Nordea. Saksóknararnir ætli að rannsaka málið. Dönsk yfirvöld höfnuðu því að rannsaka ásakanir Browder á hendur Nordea árið 2003. Browder segist í millitíðinni hafa fengið nýjar upplýsingar frá rannsóknum í Litháen og Frakklandi sem hafi gert honum kleift að kæra bankann aftur.Segjast hafa bætt eftirlit sitt Fjármálaeftirlit Svíþjóðar lagði hámarkssekt á Nordea árið 2015 fyrir slælegt eftirlit. Miklar líkur hefðu verið á því að óprúttnir aðilar hefðu getað notað bankann til þess að þvo fé eða fjármagna hryðjuverkastarfsemi án þess að hann hefði orðið þess var. Danske bank hefur verið í kreppu undanfarin misseri vegna ásakana um stórfellt peningaþvætti sem fór fram í gegnum útibúa bankans í Eistlandi. Bankastjóri Danske bank sagði af sér vegna málsins og bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur hafið rannsókn á meintum brotum. Talsmenn Nordea segja að bankinn vinni nú náið með yfirvöldum. Bankinn hafi fjárfest mikið í að styrkja eftirlit með peningaþvætti og millifærslum undanfarin ár.Bill Browder fæddist í Bandaríkjunum en er breskur borgari. Fjárfestingasjóður hans var umsvifamikill í Rússlandi áður en hann var gerður brottrækur þaðan.Stórfelldur þjófnaður rússneskra embættismanna Fjársvikin sem Magnitskí afhjúpaði voru stórfelld. Hann var endurskoðandi lögmannsstofu í Moskvu þegar hann komst á snoðir um að embættismenn rússneska skattsins og lögreglumenn hefðu stolið jafnvirði 230 milljóna dollara. Það var hins vegar Magnitskí sjálfur sem var handtekinn eftir að hann tilkynnti um brotin árið 2008. Hann var sakaður um að hafa aðstoðað við skattaundanskot. Hann lést af völdum barsmíða í fangelsi í nóvember árið 2009, aðeins 37 ára að aldri. Magnitskí vann með Browder við að afhjúpa spillingu í Rússlandi. Hermitage hafði verið einn stærsti fjárfestingasjóðurinn í Rússlandi en þarlend yfirvöld ógiltu landvistarleyfi Browder eftir að hann setti fram ásakanir um stórfellda spillingu háttsettra embættismanna. Mál Magnitskí vakti heimsathygli. Þegar Bandaríkjaþing samþykkti refsiaðgerðir gegn rússneskum embættismönnum sem eru sekir um mannréttindabrot árið 2012 voru lögin kennd við Magnitskí.
Eistland Peningaþvætti norrænna banka Rússland Tengdar fréttir Gagnrýnandi rússneskra stjórnvalda ætlar að kæra Danske bank Sergei Magnitskí, rússneskur endurskoðandi, sem lést í fangelsi í heimalandinu árið 2009 afhjúpaði peningaþvætti sem fór í gengum danska bankann. 6. júlí 2018 10:41 Vill leggja hald á ágóða Danske bank af peningaþvætti Nýjar upplýsingar hafa komið fram um að jafnvirði allt að 890 milljarða íslenskra króna hafi verið þvegið í útibúi danska bankans í Eistlandi fyrir árið 2015. 5. júlí 2018 13:49 Peningaþvætti Danske Bank til saksóknara Talið er að eistneskt dótturfyrirtæki Danske Bank hafi verið notað til að þvætta illa fengið fé rússneskra embættismanna. Áætlað er að um 53 milljarðar danskra króna hafi farið í gegnum bankann. 7. ágúst 2018 06:00 Forstjóri Danske Bank hættir: Telja að 200 milljarðar evra hafi flætt í gegnum lítið útibú í Eistlandi Tomas Borgen, forstjóri Danske Bank, hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem forstjóri bankans. Útlit er fyrir að 200 milljarðar evra, því sem nemur 25 þúsund milljörðum íslenskra króna, hafi flætt í gegnum lítið útibú bankans í Eistlandi. 19. september 2018 08:50 Mest lesið Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Viðskipti innlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf „Þarf lítið til að koma mér af stað í söng og stemningu“ Atvinnulíf Milljónavirði af gini á víðavangi og búið til með íslensku veðri Atvinnulíf Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Gagnrýnandi rússneskra stjórnvalda ætlar að kæra Danske bank Sergei Magnitskí, rússneskur endurskoðandi, sem lést í fangelsi í heimalandinu árið 2009 afhjúpaði peningaþvætti sem fór í gengum danska bankann. 6. júlí 2018 10:41
Vill leggja hald á ágóða Danske bank af peningaþvætti Nýjar upplýsingar hafa komið fram um að jafnvirði allt að 890 milljarða íslenskra króna hafi verið þvegið í útibúi danska bankans í Eistlandi fyrir árið 2015. 5. júlí 2018 13:49
Peningaþvætti Danske Bank til saksóknara Talið er að eistneskt dótturfyrirtæki Danske Bank hafi verið notað til að þvætta illa fengið fé rússneskra embættismanna. Áætlað er að um 53 milljarðar danskra króna hafi farið í gegnum bankann. 7. ágúst 2018 06:00
Forstjóri Danske Bank hættir: Telja að 200 milljarðar evra hafi flætt í gegnum lítið útibú í Eistlandi Tomas Borgen, forstjóri Danske Bank, hefur tilkynnt að hann muni segja af sér sem forstjóri bankans. Útlit er fyrir að 200 milljarðar evra, því sem nemur 25 þúsund milljörðum íslenskra króna, hafi flætt í gegnum lítið útibú bankans í Eistlandi. 19. september 2018 08:50