Viðskipti erlent

Gagnrýnandi rússneskra stjórnvalda ætlar að kæra Danske bank

Kjartan Kjartansson skrifar
Bill Browder hefur lagt fram gögn um peningaþvætti í útibúi Danske bank í Eistlandi.
Bill Browder hefur lagt fram gögn um peningaþvætti í útibúi Danske bank í Eistlandi. Vísir/EPA
Breski fjárfestingasjóðsstjórinn Bill Browder ætlar að kæra Danske bank, stærsta banka Danmerkur, til lögreglu vegna aðildar hans að umfangsmiklu peningaþvætti. Lögmaður Browder, Sergei Magnitskí, var barinn til ólífis í fangelsi í Rússlandi eftir að hann setti fram ásakanir um svikin.

Ásakanir um að umfangsmikið peningaþvætti hafi verið stundað í gegnum útibú Danske bank í Eistlandi fyrir árið 2015 hafa farið hátt í dönskum fjölmiðlum undanfarið en málið er eitt stærsta fjárglæpamál í sögu Danmerkur.

Í vikunni komu fram upplýsingar um að peningaþvættið hafi verið enn umfangsmeira en áður var vitað. Allt að 53 milljarðar danskra króna hafi mögulega verið þvegnar í útibúinu. Viðskiptaráðherra Danmerkur sagði í vikunni að hann vildi leiða í ljós hversu mikið bankinn hagnaðist á peningaþvættinu og gera ágóðann upptækan.

Browder, sem stýrir Hermitage-fjárfestingasjóðnum, hefur lagt fram upplýsingar um peningaþvættið. Hermitage var um tíma einn stærsti fjárfestingasjóðurinn í Rússlandi áður en rússnesk yfirvöld vísuðu Browder úr landi. Browder fékk Magnitskí til að rannsaka framferði stjórnvalda í Kreml gegn sér. 

Hann segir Financial Times að hann ætli að kæra Danske bank bæði í Danmörku og Eistlandi. Fjármálaeftirlit beggja landa rannsaka nú ásakanirnar en peningaþvættið á að hafa átt sér stað frá 2007 til 2015.

Hann fullyrðir að útibúið í Eistlandi hafi verið ein helsta leiðin til að þvo rússneskt fé eins og Magnitskí hafi sýnt fram á með uppljóstrunum sínum.

Lést í fangelsi eftir að hafa sakað embættismenn um spillingu

Magnitskí var rússneskur endurskoðandi sem sérhæfði sig í baráttu gegn spillingu. Setti hann fram ásakanir um meiriháttar þjófnað embættismanna á opinberu fé í Rússlandi. Hann var handtekinn í heimalandinu árið 2008 og sakaður um meiriháttar skattsvik. Magnitskí lést í fangelsi eftir ellefu mánaða dvöl árið 2009, rétt áður en rússnesk yfirvöld hefðu þurft að sleppa honum. Þá hafði honum verið neitað um læknishjálp þrátt fyrir veikindi.

Bandaríkjastjórn samþykkti refsiaðgerðir gegn rússneskum embættismönnum sem taldir eru hafa komið nálægt dauða Magnitskí undir lok árs 2012. Þeim er bannað að koma til Bandaríkjanna og að nýta sér bankaþjónustu þar samkvæmt lögum sem kennd eru við Magnitskí. Rússnesk stjórnvöld brugðust við með því að banna ættleiðingar til Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir

300 milljarðar þvættir í Danske Bank

Stjórnvöld í Aserba­ídsjan eru meðal þeirra sem hafa um fjögurra ára skeið hvítþegið um 18 milljarða danskra króna, eða rétt rúma 300 milljarða íslenskra króna, í gegnum útibú Danske Bank í Eistlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×