Ferðamenn festust í Gróttu eftir að flæddi að Atli Ísleifsson skrifar 17. september 2018 08:45 Lögregla þurfti að hafa afskipti af ferðamanni, sem var öfurölvi, við Alþingishúsið í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöldi eftir að ferðamenn urðu strandaglópar í Gróttu eftir að flæddi að. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að ferðamennirnir hafi verið að skoða norðurljós. Björgunarsveitin var kölluð út, mætti á bát og ferjaði liðið aftur til baka. Í dagbók lögreglu kemur fram að lögregla hafi þurft að hafa afskipti af mjög ölvuðum erlendum ferðamanni við Alþingishúsið skömmu eftir klukkan 20 í gærkvöldi. Maðurinn gat ekki gert grein fyrir sér og ekki sagt hvar hann gisti. Var hann vistaður í fangageymslu lögreglu meðan ástand hans lagast. Lögregla stöðvaði einnig bíl í Kópavogi skömmu eftir miðnætti þar sem ökumaðurinn, sem var kona, hafði enginn skilríki meðferðis. Aðspurð gaf konan lögreglumönnum upp ranga kennitölu en kom síðar með rétta kennitölu og reyndist hún vera svipt ökuréttindum. „Mun þetta vera ítrekað hjá konunni þ.e. að gefa ranga kennitölu. Konan er einnig kærð fyrir skjalafals þar sem bifreiðin reyndist vera á stolnum skráningarnúmerum og því ótryggð. Númerin höfðu verið tekin af samskonar bifreið í sama lit,“ segir í dagbók lögreglu. Lögregla þurfti ennfremur að hafa afskipti af fjölda ökumanna sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna bæði í gærkvöldi og í nótt.
Ferðamennska á Íslandi Lög og regla Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira