Pútín jók trúnað um njósnara rétt fyrir ásakanir um taugaeitursárásina Kjartan Kjartansson skrifar 5. september 2018 23:17 Pútín Rússlandsforseti hefur staðfastlega neitað því að Rússar hafi komið nálægt banatilræði gegn fyrrverandi njósnara á Englandi. Vísir/EPA
Vladímír Pútín forseti Rússlands gaf út tilskipun sem skilgreindi upplýsingar um njósnara sem starfa í lausamennsku fyrir leyniþjónustu landsins sem ríkisleyndarmál aðeins tveimur dögum áður en bresk stjórnvöld sökuðu Rússa um að hafa reynt að drepa rússneskan fyrrverandi njósnara á Bretlandi. Rússnesk stjórnvöld hafa staðfastlega neitað því að hafa staðið að banatilræði gegn Sergei Skrípal og dóttur hans Júlíu með taugaeitrinu Novichok í bænum Salisbury á Englandi í mars. Bresk stjórnvöld greindu frá nöfnum tveggja rússneskra útsendara sem þau segja að hafi staðið að tilræðinu.The Guardian greinir frá því að Pútín forseti hafi gert upplýsingar um njósnara eins og þá sem nú eru sakaðir um að hafa reynt að drepa Skrípalfeðginin að ríkisleyndarmáli rétt áður en Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, kenndi Rússum um tilræðið. Áður voru aðeins upplýsingar um starfsmenn utanríkisleyniþjónustunnar skilgreindar sem ríkisleyndarmál. Bresk stjórnvöld segja að meintu tilræðismennirnir hafi verið á vegum herleyniþjónustunnar GRU. Hún er talin beita sér í átökum í Úkraínu og Sýrlandi. Bandarísk yfirvöld telja ennfremur að hún hafi átt þátt í að reyna að hafa áhrif á forsetakosningarnar þar í landi árið 2016.
Rússland Tengdar fréttir Segir Rússana vera útsendara GRU Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir tvo rússneska aðila sem sakaðir eru um að hafa eitrað fyrir Sergei Skripal og dóttur hans Júlíu með taugaeitrinu Novichok í mars vera starfsmenn leyniþjónustu herafla Rússlands, 5. september 2018 12:34 Nafngreina Rússa sem grunaðir eru um Skripal-eitrunina Þeir Alexander Petrov og Ruslan Boshirov hafa meðal annars verið sakaðir um tilraun til morða og fyrir notkun taugaeitursins Novichok. 5. september 2018 10:24 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Segir Rússana vera útsendara GRU Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir tvo rússneska aðila sem sakaðir eru um að hafa eitrað fyrir Sergei Skripal og dóttur hans Júlíu með taugaeitrinu Novichok í mars vera starfsmenn leyniþjónustu herafla Rússlands, 5. september 2018 12:34
Nafngreina Rússa sem grunaðir eru um Skripal-eitrunina Þeir Alexander Petrov og Ruslan Boshirov hafa meðal annars verið sakaðir um tilraun til morða og fyrir notkun taugaeitursins Novichok. 5. september 2018 10:24