Erlent

Pakistanar óttast upprisu ISIS

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá vettvangi árásarinnar í júlí.
Frá vettvangi árásarinnar í júlí. Vísir/AP
Yfirvöld í Pakistan óttast að fjöldi vígamanna Íslamska ríkisins hafi flúið frá Írak og Sýrlandi og falið sig í Pakistan. Þar skipuleggi þeir árásir. Yfirmaður hryðjuverkadeildar lögreglunnar segir ISIS-liða vera einhverja stærstu ógn sem steðji að Pakistan um þessar mundir.

„Við erum tilbúnir til að berjast í þessu stríði,“ sagði yfirmaðurinn Pervez Ahmed Chandio við AP.



Rifjuð er upp árás frá því í júlí þar sem hinn 23 ára gamli Hafeez Nawaz sprengdi sig í loft upp á kosningasamkomu. 149 létu lífið og 300 særðust í árásinni. Nawaz hafði hætt í skóla sínum þremur árum áður og gengið til liðs við ISIS í Afganistan.

Eldri bróðir hans hafði gengið til liðs við Talibana árið 2014 en yfirgefið þá mjög fljótt. Skömmu seinna fékk hann bróðir sinn til þess að ganga til liðs við ISIS. Bræðurnir tóku þrjár systur sínar og móður sína með sér til Afganistan. Faðir þeirra, yngsti bróðir þeirra og sá elsti urðu eftir í Pakistan. Yngsti bróðirinn var sendur til þess að sannfæra þá um að koma aftur heim en hann sneri aldrei aftur. Seinna var faðir þeirra og bróðir handteknir við að reyna að komast til Afganistan.

Fjölmargir vígahópar eru staðsettir í Pakistan og margir þeirra eru óáreittir af yfirvöldum ríkisins. Embættismenn óttast þó Íslamska ríkið sérstaklega vegna eðlis samtakanna þar í landi og þeirrar leyndar sem meðlimir þeirra fara eftir. Ráði yfirvöld niðurlögum eins hóps vígamanna stingur annar upp kollinum og jafnvel annars staðar í landinu. Þá er lítið sem ekkert vitað um nýja uppbyggingu samtakanna.

Sameinuðu þjóðirnar vöruðu við því fyrr í vikunni að enn væru vígamenn Íslamska ríkisins fjölmargir og þar af væru þúsundir erlendra vígamanna. Verið væri að byggja samtökin upp á nýju og ógnin af þeim gæti aukist á nýjan leik.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×