LeBron James í LA Lakers Arnar Geir Halldórsson skrifar 2. júlí 2018 07:17 LeBron James leikur með LA Lakers næstu fjögur árin Vísir/Getty
LeBron James hefur tekið ákvörðun um framtíð sína og hefur ákveðið að færa sig um set frá Cleveland til Los Angeles. Hann gerir fjögurra ára samning við Lakers og mun fá 154 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut. Ekki hefur enn verið tilkynnt um skiptin af NBA deildinni en allir helstu fjölmiðlar Bandaríkjanna hafa greint frá því að búið sé að ganga frá samningum. Þá hefur umboðsskrifstofa LeBron staðfest fregnirnar. Vart þarf að fjölyrða um hæfni LeBron á körfuboltavellinum en hann er af mörgum talinn besti körfuknattleiksmaður sögunnar. Hann hefur þrívegis orðið NBA meistari; tvisvar með Miami Heat (2012 og 2013) og einu sinni með Cavaliers (2016). LeBron er 33 ára gamall en hann kom inn í deildina árið 2003 þegar hann var valinn fyrstur í nýliðavalinu af Cleveland Cavaliers. Í nótt var sömuleiðis tilkynnt um að skotbakvörðurinn Kentavious Caldwell-Pope verður áfram í herbúðum Lakers en hann skilaði 13,4 stigum að meðaltali í leik á síðustu leiktíð.pic.twitter.com/zgz8YO7BPn— Klutch Sports Group (@KlutchSports) July 2, 2018
NBA Tengdar fréttir LeBron laus allra mála hjá Cleveland LeBron James er laus allra mála eftir að hann nýtti sér ákvæði í samningi sínum um að spila ekki síðasta árið af samningnum sínum hjá Cleveland Cavaliers. 29. júní 2018 15:22 Mest lesið Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti „Þetta eru tvö dúndurlið“ Körfubolti Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Körfubolti Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Fótbolti Fleiri fréttir Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik „Þetta eru tvö dúndurlið“ „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Sjá meira
LeBron laus allra mála hjá Cleveland LeBron James er laus allra mála eftir að hann nýtti sér ákvæði í samningi sínum um að spila ekki síðasta árið af samningnum sínum hjá Cleveland Cavaliers. 29. júní 2018 15:22