Ásmundur bað þingið velvirðingar Birgir Olgeirsson skrifar 2. maí 2018 16:51 Ásmundur Einar Daðason, félags-og jafnréttismálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, bað þingheim afsökunar á að hafa veitt rangar upplýsingar þegar hann var spurður út í frumvarp um afnám skatta á styrki til lyfjakaupa bensínstyrki til þeirra sem eru verst staddir. Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, lagði fram þetta frumvarp en hann spurði ráðherra í dag út í umsögn sem Tryggingastofnun hafði sent efnahags- og viðskiptanefnd um þetta frumvarp. Guðmundur vill meina að Tryggingastofnun haldi því fram að ef þessar bætur verða gerðar skattlausar muni þær hafa öfug áhrif fyrir þá sem þurfa á þeim að halda. Guðmundur hafði áður beint fyrirspurn til Ásmundar um þetta frumvarp í apríl síðastliðnum en þá sagði Ásmundur að fundur hefði farið fram í velferðarráðuneytinu þar sem farið hefði verið yfir þessi mál og átti í framhaldinu að undirbúa það fyrir þingið. Fundurinn dróst hins vegar og sagði Ásmundur á þinginu í dag að honum hefði ekki verið kunnugt um á sínum tíma að honum hafði verið frestað og fór því fram eftir að hann hafði svarað fyrirspurn Guðmundar í apríl síðastliðnum. „Ég biðst velvirðingar á þessu gagnvart þinginu,“ sagði Ásmundur. Ásmundur sagðist hins vegar hafa lagt áherslu á að þessu máli verði hraðað og að hann hefði ýtt á eftir því í síðustu viku en vissi ekki nákvæmlega hvar það er statt núna. „Ég mun í framhaldi af þessari fyrirspurn þrýsta á þetta mál aftur innan ráðuneytisins vegna þess að það er mikilvægt að þarna sé gripið inn í. Það eru atriði þarna og menn hafa aðeins skiptar skoðanir með hvaða hætti þetta verður gert. Ég veit að það hefur verið til umræðu innan ráðuneytisins í góðu samráði við helstu hagsmunaaðila, að því er ég best veit.“
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira